Seðlabankinn lánaði gjaldeyrisforðann án lánaskjala og veða

hreidar.jpg
Auglýsing

„Frá­gangur láns­ins til Kaup­þings var einnig óvenju­legur þar sem Seðla­banki Íslands milli­færði ein­fald­lega 500 millj­ónir evra til Kaup­þings mánu­dag­inn 6. októ­ber eftir sam­tal um lán­veit­ing­una milli mín og Dav­íðs Odds­son­ar, for­manns banka­stjórnar Seðla­bank­ans. Engin lána­skjöl voru und­ir­rituð og Seðla­bank­inn gekk ekki frá veð­setn­ingu FIH bank­ans til sín.“ Þetta segir Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrrum for­stjóri Kaup­þings, í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í morg­un.

Kjarn­inn greindi frá því nýverið að tæpur helm­ingur umrædds láns, um 35 millj­arðar króna, sé tap­að­ur. Árni Mathies­en, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, lýsti lán­veit­ing­unni þannig í bók sinni um banka­hrunið og afleið­ingar þess að Seðla­bank­inn hafi „látið Kaup­þing hafa allan gjald­eyr­is­forð­ann sem þeir voru með hér heima þannig að það voru engir pen­ingar eftir í Seðla­bank­an­um“.

Seðla­bank­inn lán­aði því „allan gjald­eyr­is­vara­forð­ann sem þeir voru með hér heima“ án þess að gera lána­samn­inga né taka veð. Kaup­þing hefði því ekki þurft að láta FIH bank­ann af hendi sem veð fyrir lán­inu, frekar en bank­inn vildi.

Auglýsing

Seðla­bank­inn fór hins vegar fram á það við Kaup­þing nokkrum dögum síðar að gengið yrði frá lána­skjöl­unum og veð­setn­ingu FIH bank­ans. Hreiðar Már segir að stjórn­endur Kaup­þings hafi orðið við því, en þá „var búið að milli­færa láns­fjár­hæð­ina í heild sinn­i“.

Hafnar óeðli­legri ráð­stöfun láns­ins



Emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara og yfi­völd í Lúx­em­borg hafa verið með Hreiðar Má, og fleiri stjórn­endur Kaup­þings, til rann­sóknar vegna þess hvernig þau telja þá hafa ráð­stafað hluta af neyð­ar­lán­inu frá Seðla­bank­an­um. Um er að ræða hið svo­kall­aða Lind­or-­mál. þar sem grunur er um að féð frá Seðla­bank­anum hafi verið notað til að kaupa skulda­bréf af starfs­mönnum Kaup­þings í Lúx­em­borg, bank­anum sjálfum og vild­ar­við­skipta­vin­um.

Hreiðar Már neitar því stað­fast­lega í grein­inni að lán­inu hafi verið ráð­stafað með þessum hætti. „Ekk­ert af fjár­magn­inu sem Kaup­þing fékk frá Seðla­banka Íslands var notað til kaupa á eigin skulda­bréfum Kaup­þings eins og haldið hefur verið fram. Allt fjár­magnið var nýtt til að tryggja aðgang við­skipta­vina bank­ans í fjöl­mörgum löndum Evr­ópu að banka­inni­stæðum sín­um, tryggja aðgang dótt­ur­banka Kaup­þings í Evr­ópu að lausafé og mæta veð­köllum bank­ans vegna fjár­mögn­unar hans og við­skipta­vina hans á verð­bréfum hjá alþjóð­legum bönkum í Evr­ópu. Með öðrum orðum þá var allt féð notað til að tryggja sem frekast var kostur rekstur og hag Kaup­þings og við­skipta­vina bank­ans.“

Neyð­ar­lögin kynnt í rík­is­stjórn fyrir lán­veit­ingu



Í skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis kemur fram að lánið ákvörðun um lán­veit­ing­una hafi verið tekin á hádegi þann 6. októ­ber.

Síðar saman dag, eftir lokun mark­aða, flutti Geir H. Haar­de, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sjón­varps­ávarp þar sem hann til­kynnti um setn­ingu neyð­ar­laga. Inn­tak þeirra var meðal ann­ars það að inn­stæður nutu for­gangs í kröfu­hafaröð.

Hreiðar Már segir í grein sinni að stjórn­endur Kaup­þings hefðu talið að 500 milljón evra lánið frá Seðla­bank­anum hefði verið nægi­lega stór fyr­ir­greiðsla til að gera Kaup­þnigi kleift að standa að sér ástandið sem geis­aði á fjár­mála­mark­aði á þessum tíma. Í grein hans stend­ur: „Það sem við vissum ekki þá var að rík­is­stjórn Íslands myndi síðar þann dag beita sér fyrir sam­þykkt neyð­ar­laga á Alþingi Íslend­inga. Neyð­ar­lög­in, sem settu inni­stæðu­eig­endur fram fyrir aðra kröfu­hafa, kipptu fót­unum end­an­lega undan rekstri alþjóð­legra banka á Íslandi og eftir að þau voru sam­þykkt seint um kvöldið er óum­deilt að mínu viti að ekki var lengur raun­hæft að reka alþjóð­legan banka, sem sótti fjár­mögnun sína til alþjóð­legra mark­aða, frá Íslandi. Ég held að við öll getum verið sam­mála um að slíkur banki á ekki raun­hæfa mögu­leika.“

Í skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis kemur skýrt fram að vinna við neyð­ar­lögin var hafin þegar lánið til Kaup­þings var veitt og frum­varp þess efnis var kynnt á rík­is­stjórn­ar­fundi að morgni 6. októ­ber. Sá fundur hófst 8:30, mörgum klukku­tímum áður en lánið til Kaup­þings var veitt, upp­haf­lega án veða og lána­samn­inga. Því voru lög­in, sem fyrrum for­stjóri Kaup­þings telur hafa gert það óraun­hæft með öllu að reka alþjóð­legan banka á Íslandi, ákveðin og setn­ing þeirra í und­ir­bún­ingi þegar Seðla­bank­inn ákvað að lána alþjóð­lega bank­anum Kaup­þingi allan inn­lendan gjald­eyr­is­forða sinn.

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None