Segir endurskoðanda hafa verið rekinn fyrir að vera heiðarlegur

jon-steinar.png
Auglýsing

Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrrum hæsta­rétt­ar­dóm­ari, skrifar grein í Morg­un­blaðið í dag þar sem hann segir að end­ur­skoð­andi sem starf­aði hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra hafi verið rek­inn fyrir að vera heið­ar­leg­ur. End­ur­skoð­and­inn, Þor­steinn Har­alds­son, sendi orð­send­ingu til fjár­mála­ráð­herra vegna þess að hann taldi rík­is­skatt­stjóra hafa mis­beitt valdi sínu þegar hann ákvað að sleppa Stoð­um, áður FL Group, við greiðslu 13 millj­arða króna skatta­skuldar sem emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra hafði talið að leggja ætti á félag­ið.

Þor­steinn höfð­aði mál gegn íslenska rík­inu vegna upp­sagn­ar­inn­ar. Hæsti­réttur dæmdi honum í vil í síð­ustu viku. Íslenska rík­inu var gert að greiða Þor­steini 6,5 millj­ónir króna auk drátt­ar­vaxta og máls­kostn­að­ar. Heild­ar­greiðsla til Þor­steins er því lík­lega á bil­inu níu til tíu millj­ónir króna.

Sagt upp 62 ára



Í dómi Hæsta­réttar kemur fram að Þor­steinn hafi veri sagt upp störfum hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra árið 2012 og upp­sögnin hafi verið rök­studd með því að emb­ætt­inu hefði verið gert að sæta nið­ur­skurði sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varpi. Mán­uði áður en upp­sagn­ar­frestur Þor­steins var lið­inn var hins vegar hætt við þann nið­ur­skurð og í kjöl­farið höfð­aði Þor­steinn mál vegna ólg­mætrar upp­sagn­ar. Þor­steinn var 62 ára þegar honum var sagt upp störf­um.

Í grein Jóns Stein­ars segir að upp­sögnin hafi átt sér annan aðdra­ganga en nið­ur­skurð. „Svo stóð á að skatt­rann­sókn­ar­stjóri rík­is­ins hafði á árinu 2008 tekið til rann­sóknar skatt­skil fyr­ir­tæk­is­ins Stoðir hf. (áður FL Group hf.), meðal ann­ars vegna ætl­aðrar van­greiðslu tekju­skatts frá rekstr­ar­ár­inu 2006. Hafði fyr­ir­tækið í skatt­skilum sínum 2007 talið sér heim­ilt að fresta skatt­skilum af sölu­hagn­aði hluta­bréfa­við­skipta að fjár­hæð um 50 millj­arðar króna. Lá fyrir að sölu­hagn­aður þessi hefði leitt til um 13 millj­arða króna skatt­greiðslu félags­ins, sem aldrei átti sér stað vegna síð­ari laga­breyt­inga. Taldi skatt­rann­sókn­ar­stjóri að leggja hefði átt við­bót­ar­skatt­inn á enda væri það í sam­ræmi við þá túlkun skatta­laga sem rík­is­skatt­stjóri hefði beitt í eldri úrskurði og aðrir gjald­endur því talið sér skylt að fara eft­ir. Svo fór að rík­is­skatt­stjóri ákvað að fella málið niður og sleppa þessum gjald­anda þar með við greiðslu skatts­ins, sem eins og áður sagði nam um 13 millj­örðum króna“.

Auglýsing

Segir ástæðu upp­sagnar ekki fara á milli mála



Jón Steinar segir að Þor­steinn end­ur­skoð­andi hafi verið starfs­maður skatt­rann­sókn­ar­stjóra á þeim tíma sem skatt­rann­sóknin stóð yfir og að hann hafi meðal ann­ars unnið við hana. „Hann fylgd­ist því með þeim ákvörð­unum sem teknar voru á grund­velli rann­sókn­ar­innar og taldi að hér hefði verið tekin ákvörðun sem væri and­stæð lögum og fæli í sér grófa mis­munun milli gjald­enda. Að auki yrði rík­is­sjóður af háum skatt­tekjum vegna afgreiðslu máls­ins[...]Eftir að hafa meðal ann­ars leitað ráða hjá einum af nefnd­ar­mönnum í rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um við­brögð við því að verða sem starfs­maður vitni að slíkri mis­notkun valds til skatt­á­lagn­ing­ar, ákvað Þor­steinn að senda orð­send­ingu um málið til fjár­mála­ráð­herra sem fer með eft­ir­lit með með­ferð rík­is­skatt­stjóra á valdi sínu. Ráð­herra sá ekki ástæðu til að bregð­ast neitt við þessu. Hins vegar leiddi þetta til þess að Þor­steinn fékk frá yfir­mönnum sínum til­kynn­ingu um að til stæði að áminna hann fyrir brot í starfi vegna bréfs­ins, en slík áminn­ing er sam­kvæmt lögum und­an­fari brott­vikn­ing­ar.“

Í kjöl­far þess að Þor­steinn mót­mælti yfir­von­andi áminn­ingu skrif­lega var honum til­kynnt að fallið hefði verið frá henni. Mán­uði síðar var hann rek­inn vegna nið­ur­skurð­ar. Jón Steinar segir að ekki fari mikið á milli mála hver raun­veru­leg ástæða upp­sagn­ar­innar var. „Núna liggur fyrir að yfir­menn Þor­steins Har­alds­sonar bök­uðu rík­is­sjóði bóta­skyldu með því að reka hann. Hann var í reynd rek­inn fyrir að vera heið­ar­leg­ur. Rík­is­skatt­stjór­inn sem ákvað hins vegar með einu penna­striki að sleppa álagn­ingu tekju­skatts sem um mun­aði situr áfram í emb­ætti og rær í gráð­ið. Eng­inn veit ástæð­una fyrir því að mað­ur­inn tók ákvörðun sína. Og eng­inn mun fá að vita hana, því á Íslandi kom­ast menn einatt upp með mis­notkun opin­bers valds síns ef mis­notk­unin er nógu stór­felld og unnt reyn­ist að skýra hana með orðum sem eng­inn skil­ur.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None