Segir Matorku fá sérmeðferð hjá ráðherra, sem vísar gagnrýni á bug

16346716795_4de1d6330a_z.jpg
Auglýsing

Íviln­un­ar­samn­ingur við Matorku var tek­inn til sér­stakrar umræðu á Alþingi í dag. Helgi Hjörvar var upp­hafs­maður umræð­unnar og hann ­gagn­rýndi Ragn­heiði Elínu Árna­dóttur iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra harð­lega.

Helgi spurði hvernig Ragn­heiður Elín leyfði sér að gera samn­ing af þessu tagi, um veru­leg fjár­fram­lög úr rík­is­sjóði, án þess að það sé gert á grund­velli gild­andi laga, en engin lög eru í gildi um íviln­anir til nýfjár­fest­inga hér á landi eftir að fyrri lög runnu úr gildi 2013. Samn­ing­ur­inn við Matorku er gerður með þeim fyr­ir­vara að frum­varp Ragn­heiðar Elínar um íviln­anir til nýfjár­fest­inga verði sam­þykkt. Frum­varpið hefur einnig verið gagn­rýnt, ­meðal ann­ars af allri efna­hags- og við­skipta­nefnd þings­ins. Það er nú til umfjöll­unar í atvinnu­vega­nefnd.

„Hvers vegna fær fyr­ir­tækið Matorka þessa sér­með­ferð hjá ráð­herr­an­um? Aug­ljós­lega er það sér­með­ferð vegna þess að þeir samn­ingar sem gerðir hafa verið við tvo aðra aðila, Thorsil og Alga­líf, eru lagðir fyrir þingið vegna þess að það eru engin lög í gild­i,“ sagði Helgi. Ráð­herr­ann tæki hins vegar sér­staka ákvörðun um að fara öðru­vísi að með Matorku. „Hefði ekki þvert á móti vegna hinna marg­vís­legu tengsla fyr­ir­tæk­is­ins við Sjálf­stæð­is­flokk­inn verið full ástæða til að fara sér­stak­lega var­lega og leggja einmitt sér­stak­lega slíkan samn­ing undir þingið en gera hann ekki bara með fyr­ir­vara um að þingið sam­þykki ein­hver lög ein­hvern tím­ann í fram­tíð­inn­i?“

Auglýsing

Ragn­heiður Elín svar­aði því til að hún myndi einnig leggja samn­ing­inn við Matorku fyrir þingið ef ekki tæk­ist að koma frum­varpi hennar um íviln­anir í gegnum þing­ið. Hún sagð­i ­jafn­framt að nán­ast allt sem Helgi hefði sagt væri byggt á mis­skiln­ingi og að and­stæð­ingar hefðu reynt að gera málið mjög tor­tryggi­legt að ósekju. „Þegar málið er skoðað af sann­girni þá sjá menn að þetta eru vind­högg. Ég full­yrði það að þessi samn­ingur hefði fengið nákvæm­lega sömu afgreiðslu hjá sein­ustu þremur iðn­að­ar­-og við­skipta­ráð­herrum, þeim Katrínu Júl­í­us­dótt­ur, Odd­nýju Harð­ar­dóttur og Stein­grími J. Sig­fús­syn­i,“ sagði hún.

„Í umræddu máli, Matorku, hefur verið fylgt nákvæm­lega sömu leik­reglum og hafa verið í gildi síð­ast­liðin fimm ár, nákvæm­lega. Ég hef talið afar mik­il­vægt að gæta sam­ræmis og hlut­leysis við gerð þess­ara fjár­fest­ing­ar­samn­inga og frá árs­byrjun 2014 hef ég fyrir hönd rík­is­ins und­ir­ritað fimm slíka, nú síð­ast við Matorku,“ sagði Ragn­heiður Elín. Hún sagði jafn­framt við lok umræð­unnar að það ætti að ræða það almennt hvort standa ætti í íviln­unum til fyr­ir­tækja almennt og þá með hvaða hætti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None