Segja seðlabankastjóra „tala upp verðbólguna“

olafia_b_rafnsdottir_formadur_vr_stor-1.jpg
Auglýsing

VR segir að Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri tali upp verð­bólg­una með því að segja að nýgerðir kjara­samn­ingar muni leiða til þess að fyr­ir­tæki þurfi að hækka verð­lag. „Með þessum orðum hefur seðla­banka­stjóri gefið fyr­ir­tækjum grænt ljós á að hækka verð og fela sig á bak við það að laun hafi hækkað of mik­ið. Í við­tal­inu segir hann að ólík­legt sé að fyr­ir­tæki geti heilt yfir tekið þetta á sig og því muni verð­lag hækk­a,“ segir í til­kynn­ingu frá Ólafíu B. Rafns­dótt­ur, for­manni VR.

Már sagði í kvöld­fréttum RÚV á föstu­dags­kvöld að nú væri teflt á tæp­asta vaði með þeim kjara­samn­ingum sem nú hefðu verið und­ir­rit­að­ir. „Þetta þýðir þá það að lík­urnar eru veru­legar á því að verð­bólga fari núna vax­andi enda hefur það sýnt sig á mark­aðnum í dag að verð­bólgu álag á rík­is­skulda­bréfa­mark­aði hefur rokið upp,“ sagði Már Guð­munds­son. Ó­lík­legt væri að öll fyr­ir­tæki gætu staðið undir þessum launa­hækk­un­um, einkum þau sem væru með þungan launa­kostnað hlut­falls­lega og lítið svig­rúm til að takast á við kostn­að­ar­hækk­an­ir.

Ólafía segir að þessi orð Más séu í and­stöðu við nýjasta hefti Pen­inga­mála, riti Seðla­bank­ans, þar sem komi fram að stjórn­endur séu bjart­sýnir um þróun fram­legðar á næstu sex mán­uð­um, og það geti verið vís­bend­ing um að fyr­ir­tæki hafi nokk­urt svig­rúm til að taka á sig hækk­anir án þess að velta þeim út í verð­lag eða hægja á ráðn­ing­um. „Laun og launa­tengd gjöld eru að með­al­tali um 20% af rekstr­ar­gjöldum fyr­ir­tækja. Það þýðir að t.d. 5% hækkun á launum og launa­tengdum gjöldum þarf aðeins að leiða til þess að fyr­ir­tæki hækki verð­lag um rúmt 1%. Hlut­fall launa­kostn­aðar er þó mjög mis­jafnt milli fyr­ir­tækja og getur verið allt frá um 10% og yfir 40%. Þær atvinnu­greinar þar sem starfs­fólk er alla jafna á lægri launum eru einnig í þeirri stöðu að laun og tengd gjöld eru lágt hlut­fall af heild­ar­kostn­aði, eða um 10%. Sér­stök hækkun lægstu launa ætti því ekki að þurfa að leiða til þess að verðlag hækki mik­ið.“

Auglýsing

Þá segir Ólafía að bent hafi verið á að verð­bólgu­vænt­ingar hafi rokið upp. „Það áhuga­verða er að verð­bólgu­vænt­ing­ar, hvort sem það eru vænt­ingar fyr­ir­tækja, almenn­ings eða mark­að­ar­ins, eru yfir­leitt slæmur mæli­kvarði á verð­bólgu í fram­tíð­inn­i,“ segir Ólaf­ía. Hún segir að verð­bólgu­vænt­ingar hafi kannski rokið upp nú vegna þess að Seðla­bank­inn hafi talað óvar­lega um áhrif launa­hækk­ana og átt sinn þátt í því að vænt­ing­arnar hafi rokið upp.

„Þannig hefur Seðla­bank­anum tek­ist að hækka þær vænt­ingar sem hann vill halda niðri. Nú stefnir því allt í að Seðla­bank­inn muni hækka vexti til að ná niður vænt­ingum sem hann hefur sjálfur tekið þátt í að þrýst upp á við. Skyn­sam­legra væri að bíða eftir áhrifum kjara­samn­ing­anna og grípa þá inn í með aðgerð­um, ef þörf kref­ur.“

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None