Segja tekjufærslu á 21 milljarði króna byggja á „áætlun“ um hagnað

000-Par3102539.jpg
Auglýsing

Minni hluti efna­hags- og við­skipta­nefndar telur að asi á því að tekju­færa 21 millj­arð króna hjá rík­is­sjóði vegna lækk­unar á eigin fé Seðla­banka Íslands sé allt annað en traust­vekj­andi, enda bygg­ist tekju­færslan á  „áætl­un“ um hagnað af rekstri Seðla­bank­ans á yfir­stand­andi ári. Hann mun því ekki sitja hjá við afgreiðslu frum­varps til laga sem lög­festir nýja arð­greiðslu­reglu fyrir Seðla­banka Íslands. Í áliti minni hlut­ans segir að með því sé hann að „vísa ábyrgð á því á hendur stjórn­ar­meiri­hlut­an­um“.

Undir álitið skrifa Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður Vinstri grænna, Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og Guð­mundur Stein­grims­son, for­maður Bjartrar fram­tíð­ar.

Lækka eigið fé Seðla­banka og auka tekjur rík­is­sjóðs



Kjarn­inn greindi frá því í byrjun októ­ber að til stæða að leggja fram frum­varp um að lög­festa nýja arð­greiðslu­reglu fyrir Seðla­banka Íslands. Verði frum­varpið að lögum mun Seðla­bank­inn borga allan hagnað yfir ákveðið lág­marks eigið fé til rík­is­sjóðs sem arð­greiðslu. Frum­varpið var síðan lagt fram 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þar kom fram að „Heild­ar­fjár­hæð inn­kall­an­legs eigin fjár […]er 52 millj­arðar kr. Eft­ir­stöðvar inn­kall­an­legs eigin fjár fær­ast upp við hver ára­mót með hækkun vísi­tölu neyslu­verðs“.

Arð­greiðslur Seðla­bank­ans til rík­is­sjóðs gætu auk­ist til muna á næstu árum verði lögum um þær breytt. Frum­varp um slíka breyt­ingu var lagt fram 11. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.

Auglýsing

Frumvarpið snýst um að breyta arðgreiðslureglu Seðlabankans. Það tryggir ríkissjóði miklar tekjur til skamms tíma. Frum­varpið snýst um að breyta arð­greiðslu­reglu Seðla­bank­ans. Það tryggir rík­is­sjóði miklar tekjur til skamms tíma.

Sam­kvæmt frum­varp­inu mun við gild­is­töku lag­anna, verði þau sam­þykkt, verða„heim­ilt að lækka stofnfé rík­is­sjóðs í Seðla­banka Íslands um 26 millj­arða króna“. Líkt og Kjarn­inn hefur þegar greint frá mun sú upp­hæð fara í að lækka skulda­bréf sem ríkið skuldar Seðla­bank­anum um 26 millj­arða króna, í 145 millj­arða króna. Sú aðgerð gerir það að verkum að vaxta­greiðslur rík­is­ins vegna skulda­bréfs­ins verða 8,1 millj­arður króna á næsta ári.

Í fjár­laga­frum­varpi fyrir árið 2015 segir að þessi nýja arð­greiðslu­regla geri „ráð fyrir því að auknar vaxta­tekjur vegna skulda­bréfs­ins skili sér aftur til rík­is­sjóðs í formi arð­greiðslu þar sem nýja reglan gerir ráð fyrir að allur hagn­aður bank­ans verði greiddur til rík­is­sjóðs sé eigið fé bank­ans yfir skil­greindu við­mið­i“.

Með nýju arð­greiðslu­regl­unni gæt­u því vext­irnir sem ríkið greiðir af skuld sinni við Seðla­bank­ann skilað sér aftur til rík­is­sjóðs í formi arð­greiðslu í lok hvers árs.

Segja frum­varpið setja Alþingi í klemmu



Efna­hags- og við­skipta­nefnd hefur haft málið til umfjöll­un­ar. Minni hluti hennar skil­aði nefnd­ar­á­liti í dag. Þar gerir hann athuga­semdir við hversu seint málið barst til Alþingis og segir að málið sé þannig fram sett og í þannig sam­hengi af hálfu stjórn­ar­meiri­hlut­ans að „það setur Alþingi í veru­legan vanda. Þetta stafar af því að gert er ráð fyrir tekj­unum frá Seðla­bank­anum í frum­varpi til fjár­auka­laga sem lagt var fram og fjallað um á undan því máli sem hér hefur verið til umfjöll­un­ar. Minni hlut­inn leggur áherslu á að ótækt sé að setja Alþingi í slíka klemmu“.

  Minni hlut­inn telur að sá asi sem er á því að tekju­færa 21 millj­arð kr. af 26 millj­arða kr. lækkun eigin fjár þegar á þessu ári sé allt annað en traust­vekj­andi, enda bygg­ist tekju­færslan á „áætl­un“ um hagnað af rekstri Seðla­bank­ans á yfir­stand­andi ári.

Síðar í álit­inu segir að „eðli­legri vinnu­brögð hefðu verið að lög­festa fyrst rammann um ný eig­in­fjár­við­mið Seðla­banka Íslands, láta því næst bank­ann og banka­ráðið ganga frá þeim reglum og leggja þá mat á hvort og þá hve mikil tekju­færsla ætti að eiga sér stað hjá rík­is­sjóði vegna lækk­unar á eigin fé Seðla­bank­ans.

Minni hlut­inn telur að sá asi sem er á því að tekju­færa 21 millj­arð kr. af 26 millj­arða kr. lækkun eigin fjár þegar á þessu ári sé allt annað en traust­vekj­andi, enda bygg­ist tekju­færslan á „áætl­un“ um hagnað af rekstri Seðla­bank­ans á yfir­stand­andi ári. Ekki hefði þurft að byggja á „áætl­un“ ef tekju­færslan hefði átt sér stað á næsta ári.

Minni hlut­inn mun í ljósi þeirra sjón­ar­miða sem hér hafa verið rakin sitja hjá við afgreiðslu máls­ins og vísa ábyrgð á því á hendur stjórn­ar­meiri­hlut­an­um“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None