Starfsgreinasambandið (SGS) hefur ákveðið að fresta fyrirhuguðu verkfalli 10.000 félagsmanna aðildarfélaga sambandsins dagana 19. og 20. maí. Að auki SGS frestað ótímabundnu verkfalli sem átti að hefjast 26. maí. „Það er mat samninganefndar SGS að gefinn skuli tími til úrslitatilrauna í samningaviðræðum á þessu stigi málsins,“ eins og segir í fréttatilkynningu frá Starfsgreinasambandinu sem send var fjölmiðlum nú rétt í þessu.
Þá segir í tilkynnningunni frá SGS: „Með þessu axlar SGS ábyrgð á erfiðum kjaradeilum og gefur Samtökum atvinnulífsins tækifæri til að koma með tillögur sem hönd er á festandi áður en landið lamast í verkföllum og hér skellur á neyðarástand á vinnumarkaði.
Frestun verkfalla á þessu stigi málsins er framlag Starfsgreinasambandsins til skynsamlegra lausna á kjaradeilunni. Ljóst er að það verður að leysa málið og semja hvort sem það verður gert með verkfallsafli með ófyrirsjáanlegum afleiðingum eða með skynsemina að vopni. Boltinn er hjá Samtökum atvinnulífsins að nálgast skynsamar og ábyrgar kröfur Starfsgreinasambandsins.
„Eftir tvær vikur hefjast verkföll af stærðargráðu sem við höfum ekki séð áður ef ekki tekst að semja. Þau munu hafa veruleg og víðtæk áhrif og það er mikið til vinnandi að afstýra slíku. Framlag Starfsgreinasambandsins í þessu samhengi er að gefa andrými næstu tvær vikurnar til að semja svo ekki þurfi að koma til þessara hörðu aðgerða.“ Segir Björn Snæbjörnsson formaður Starfsgreinasambandsins.“