SI áttu fund með ráðherra um höftin - vilja meiri skilvirkni

10000krsedillMarogBjarni.jpg
Auglýsing

Sam­tök iðn­að­ar­ins (SI) áttu rúm­lega klukku­tíma langan fund með Bjarna Bene­dikts­syni, efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, í gær þar sem þau hvöttu hann meðal ann­ars til að beita sér fyrir skil­virk­ari afgreiðslu und­an­þágu­beiðna hjá Seðla­banka Íslands. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá sam­tök­un­um.

„Langur afgreiðslu­tími hjá gjald­eyr­is­eft­ir­liti bank­ans og óljós mörk eru á meðal þess sem veldur fjár­festum og fyr­ir­tækjum vand­ræð­um. Sam­tökin ósk­uðu í byrjun vik­unnar eftir fundi með Bjarna Bene­dikts­syni í kjöl­far fregna af brott­hvarfi höf­uð­stöðva hins rót­gróna iðn­fyr­ir­tækis Promens, Fjár­mála­ráð­herra brást vel við beiðn­inni og átti langan fund með stjórn og fram­kvæmda­stjóra Sam­taka iðn­að­ar­ins síð­degis í gær um stöðu alþjóð­legra fyr­ir­tækja á Íslandi og mik­il­vægi afnáms hafta hið fyrsta,“ segir í til­kynn­ingu frá Sam­tökum iðn­að­ar­ins.

Almar Guð­munds­son, for­maður Sam­taka iðn­að­ar­ins, segir fund­inn hafa verið afar gagn­legan og rætt hafi verið um mik­il­vægi þess að vera með sam­keppn­is­hæft umhverfi fyrir alþjóð­lega starf­semi. „Fund­ur­inn var afar gagn­legur og báðir aðilar fóru yfir sjón­ar­mið sín. Við ræddum hversu mik­il­vægt það sé að fyr­ir­tæki í alþjóð­legri starf­semi séu í sam­keppn­is­hæfu umhverfi. Aðeins þannig verður hér til sam­fé­lag vel mennt­aðs fólks sem sér tæki­færi í því að taka þátt í upp­bygg­ingu alþjóð­legra fyr­ir­tækja á Íslandi. Þeim tæki­færum mun áfram fækka ef höftin verða hér við­var­andi ástand. Það er mjög flókið og erfitt er að útskýra fyrir erlendum fag­fjár­festum allar þær sér­tæku lausnir sem Ísland hefur gripið til. Þessi lausn getur aldrei verið til lang­frama og hún er þegar farin að valda okkur miklum skaða. Ekki síst í formi tap­aðra tæki­færa til upp­bygg­ingar verð­mætra starfa og hag­vaxtar í land­in­u,“ segir Almar.

Auglýsing

Guð­rún Haf­steins­dótt­ir, for­maður Sam­taka iðn­að­ar­ins, segir að SI séu til þjón­ustu reiðu­búin þegar komi að afnámi fjár­magns­hafta, við að greina stöðu mála, og þá ekki síst hversu miklum skaða höftin hafi þegar valdið alþjóð­legum fyr­ir­tækjum hér á land­i. „Við erum ánægð með skjót við­brögð Bjarna Bene­dikts­sonar og erum von­góð eftir þennan fund um að fjár­mála­ráð­herra vinni að mik­il­vægum hags­munum fyr­ir­tækja í alþjóð­legri starf­semi og gæti þess að þeir séu hafðir til hlið­sjónar við áætl­anir um afnám haft­anna. Við höfum sagt að við erum reiðu­búin til sam­vinnu við stjórn­völd um að greina stöðu mála varð­andi sam­keppn­is­hæfni alþjóð­legra fyr­ir­tækja hér á landi og leggja mat á umfang þess mikla skaða sem höftin hafa þegar vald­ið.“

Ráð­herra skýrði á fund­inum þá vinnu sem er í gangi í tengslum við afnám hafta og ítrek­aði vilja sinn til góðs sam­starfs við atvinnu­líf­ið. For­svars­menn SI röktu fyrir ráð­herra ýmis dæmi um afleið­ingar haft­anna á aðild­ar­fyr­ir­tæki sam­tak­anna og starfs­fólk þess­ara fyr­ir­tækja. Einnig bentu þeir á dæmi um hluti sem laga þurfi í fram­kvæmd gjald­eyr­is­haft­anna. Svo sem hvað varðar afgreiðslu á und­an­þágum frá höft­unum sem Seðla­bank­inn ann­ast og þyrfti að vera skil­virkara að mati Sam­taka iðn­að­ar­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None