Frestur til þess að tilnefna verðlaunahafa á Nexpo verðlaunahátíðinni, sem fer fram þann 27. mars næstkomandi, rennur út í dag. Hægt er að tilnefna verðlaunahafa í öllum átta verðlaunaflokkunum hér á Kjarnanum.
Verðlaun verða veitt í átta flokkum, þar af tveimur nýjum flokkum: sprotafyrirtæki ársins verður valið og besti markaðsárangur sprotafyrirtækis sömuleiðis. Aðrir verðlaunaflokkar eru vefhetjan, app ársins, vefur, herferð og stafrænt markaðsstarf ársins. Þá verður besta óhefðbundna auglýsing ársins verðlaunuð.
Þegar dómnefnd hefur valið úr endanlegar tilnefningar verður opnað fyrir kosningu til verðlaunanna hér á vef Kjarnans þann 19. mars. Sigurvegarar verða valdir í netkosningu og með atkvæði dómnefndar, sem vegur til helmings á móti netkosningunni.
Nexpo verðlaunahátíðin er nú haldin í fimmta sinn, en tæknivefurinn Simon hefur tekið við hátíðinni. Simon mun annast framkvæmd hátíðarinnar í samstarfi við Kjarnann og Klak Innovit.