Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra ætlar ekki að ræða við þingmenn Samfylkingarinnar um afnám verðtryggingarinnar, eins og þeir hafa ítrekað óskað eftir. Þetta kom fram í máli Einars K. Guðfinnssonar, forseta Alþingis, í störfum þingsins í dag.
Samkvæmt Einari hafa þær upplýsingar borist frá Sigmundi Davíð að hann líti svo á að afnám verðtryggingarinnar sé á borði Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa undanfarið minnst mjög reglulega á það í störfum þingsins og undir liðnum fundarstjórn forseta að Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, óskaði eftir því í febrúar á síðasta þingi að forsætisráðherra ræddi við þingið um afnám verðtryggingarinnar, sem var eitt stærsta kosningaloforð Framsóknarflokksins í síðustu kosningum. Hann varð ekki við því á síðasta þingi og beiðnin um sérstaka umræðu var því endurnýjuð þegar þing kom saman að nýju í haust.
Í dag komu þingmenn Samfylkingarinnar í ræðustól og ræddu um þetta og einnig um það að þingmenn Framsóknarflokksins hafa undanfarið komið fram í þinginu og rætt um þetta kosningaloforð flokksins. Forseti þingsins svaraði spurningum þingmanna og spurningum og sagði að Sigmundur hygðist ekki verða við beiðni um sérstaka umræðu vegna þess að hann telji að málið sé á forræði Bjarna Benediktssonar.
Þessi tíðindi vöktu mikil viðbrögð stjórnarandstöðunnar, sem gagnrýndi þetta mjög, enda
Framsóknarflokkurinn ræddi mikið um afnám verðtryggingarinnar í aðdraganda síðustu kosninga. Í pistli fyrir kosningarnar, sem nefndist Framsóknarstjórn eða verðtryggingarstjórn, sagði Sigmundur Davíð meðal annars að staðan væri ekki flókin og ljóst væri að annað hvort yrði ríkisstjórn mynduð um skuldaleiðréttingu, afnám verðtryggingar og heilbrigðara fjármálakerfi, eða ríkisstjórn þeirra sem væru gegn þessum málum. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur hins vegar sagt að það standi alls ekki til að afnema verðtryggingu. Þó væri unnið að frumvarpi um breytingar á verðtryggðum lánum í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og mögulegt er að það verði lagt fram á haustþingi. Þær breytingar áttu að þrengja að 40 ára jafngreiðslulánum og fara með þau niður í 25 ár. Það frumvarp er ekki á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir komandi vetur.