Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra var sæmdur stórkrossi hinnar íslensku fálkaorðu þann 13. desember síðastliðinn. Ekki hefur verið greint frá veitingunni annarsstaðar en á undirsíðu nefndar sem veitir fálkaorðuna á heimasíðu embættis forseta Íslands. Frá þessu er greint á DV.is.
Sigmundi Davíð var veitt orðan laugardaginn 13. desember, skömmu eftir að hann snéri aftur úr fríi sem hann fór í með eiginkonu sinni vegna fertugsafmæli hennar. Forsætisráðherrann var gagnrýndur víða fyrir að fara í fríið þar sem hann missti af annarri umræðu fjárlaga á Alþingi fyrir vikið.
Guðni Ágústsson formaður orðunefndar
Sex manns sitja í orðunefnd fálkaorðunnar. Guðni Ágústsson, fyrrum formaður Framsóknarflokksins, er formaður nefndarinnar. Aðrir sem í henni sitja eru Ellert B. Schram, Rakel Olsen, Ólafur Egilsson, Þórunn Sigurðardóttir og Örnólfur Thorsson. Stórkrossinn er þriðja efsta stig fálkaorðunnar.
Þá var Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, sæmdur stórriddarakrossi þann 12. desember 2014.
Orðustig Hinnar íslensku fálkaorðu eru fimm talsins. Fyrsta stig orðunnar er riddarakrossinn og eru flestir orðuþegar sæmdir honum. Annað stig er stórriddarakross, þriðja stig stórriddarakross með stjörnu og fjórða stig er stórkross. Æðsta stig fálkaorðunnar er keðja ásamt stórkrossstjörnu en hana bera einungis þjóðhöfðingjar.