Sigríður Björk: Ekki hvarflað að mér að segja af mér

sbg.jpg
Auglýsing

Sig­ríður Björk Guð­jóns­dótt­ir, lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, segir að það hafi aldrei hvarflað að sér að segja af sér vegna leka­máls­ins eða nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar um að lög hafi verið brotin í sam­skiptum hennar við Gísla Frey Val­dórs­son, fyrrum aðstoð­ar­mann Hönnu Birnu Krist­jáns­dótt­ur. Hún segir að úrskurður Per­sónu­verndar snú­ist "í raun og veru" um hvernig yfir­stofn­anir og und­ir­stofn­anir eigi að eiga sam­skipti sín á milli. Sig­ríður Björk segir enn fremur að mikil fjöl­miðlaum­fjöllun um málið hafi komið sér á óvart og að hún hafi tekið umfjöll­un­ina nærri sér. Þetta kemur fram í við­tali við Sig­ríði Björk í Morg­un­blað­inu í morgun.

Vert er að taka fram að Kjarn­inn og fleiri fjöl­miðlar hafa ítrekað óskað eftir svörum frá Sig­ríði Björk um nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar og aðra mögu­lega aðkomu hennar að leka­mál­inu. Hún hefur ekki svarað þeim fyr­ir­spurn­um.

Segir lög­reglu hafa skoðað sam­skipti sín við Gísla Frey



Sú spurn­ing sem helst hefur verið ósvöruð er af hverju Sig­ríður Björk lét ekki rann­sak­endur leka­máls­ins vita að Gísli Freyr hefði verið í sam­skiptum við hana þessa sömu daga og lek­inn á minn­is­blaði um Tony Omos og fleiri átti sér stað til að óska eftir upp­lýs­ingum um sama fólk. Sig­ríður Björk svarar þeirri spurn­ingu í Morg­un­blað­inu svona: "Því er til að svara að sam­skipti mín við aðstoð­ar­mann­inn fóru fram eftir að hann hafði lekið upp­lýs­ingum til fjöl­miðla. Jafn­framt að öll sam­skipti aðstoð­ar­manna og tölvu­póst­send­ingar voru skoðuð af lög­regl­unni og allar upp­lýs­ingar um mín sam­skipti lágu þar fyr­ir."

Sig­ríður Björk segir að málið hafi reynt á hana og emb­ættið en að því sé nú lok­ið. Hún seg­ist ánægð og þakk­lát fyrir orð Ólafar Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra þess efnis að hún telji Sig­ríði Björk hafa verið í góðri trú þegar hún sendi Gísla Frey gögn. "Eg er einnig þakk­lát fyrir það traust sem ráð­herr­ann sýnir mér."

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None