Sigrún Davíðsdóttir skorin niður í hálft starf hjá RÚV frá áramótum

15375274104-95086a17fb-z.jpg
Auglýsing

Starf Sig­rúnar Dav­íðs­dótt­ur, frétta­manns og pistla­höf­undar hjá RÚV sem stað­sett er í London, verður minnkað úr heilu starfi niður í hálft um kom­andi ára­mót. Þetta stað­festir Sig­rún við Kjarn­ann. Frétta­skýr­ingar og pistlar Sig­rúnar hafa um ára­bil verið fluttar í Spegl­in­um, frétta­skýr­ing­ar­þætti í út­varpi RÚV. Sig­rún hefur fjallað mest allra frétta­manna RÚV um efna­hags­mál og mál sem tengj­ast efna­hags­hrun­inu sem átti sér stað 2008. Umfjall­anir hennar hafa bæði verið um inn­lend mál sem erlend. Hún var meðal ann­ars valin frétta­maður árs­ins hjá RÚV árið 2009.

Sigrún Davíðsdóttir. Sig­rún Dav­íðs­dótt­ir.

Kjarn­inn greindi frá því í gær að framundan sé blóð­ug­asti nið­ur­skurður í sögu RÚV vegna fyr­ir­hug­aðrar lækk­unar á útvarps­gjald­inu.  Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans ­gerir rekstr­ar­á­ætlun RÚV ráð fyrir að fyr­ir­huguð lækkun útvarps­gjalds­ins muni leiða til nauð­syn­legs nið­ur­skurðar í rekstri félags­ins fyr­ir­ hátt í 700 millj­ónir króna á ári. Rekstr­ar­á­ætl­unin hefur verið yfir­farin af óháðum aðil­um, að því er heim­ildir Kjarn­ans herma.

Auglýsing

Ekki hætt, en mikil breyt­ing



Sig­rún seg­ist hafa fundið fyrir því á und­an­förnum árum að nor­rænir frétta­menn sem starfi erlendis hafi verið skornir mikið nið­ur. Hún sé ekki hætt en breyt­ingin muni skerða svig­rúm hennar til að sinna starfi sínu. „ Mér var í haust boðið upp á það sem sam­svarar hálfu starfi, það kemur til fram­kvæmda um ára­mótin svo ég er ekki alveg hætt. Hins vegar breytir þetta miklu fyrir mig og gefur mér ekki sama svig­rúm og áður til sinna því sem ég tel skipta máli. Það verður bara að koma í ljós hvað verð­ur.

Það er ögn dap­ur­legt að um leið og við sem vinnum erlendis finnum bæði fyrir meiri almennum áhuga heima fyrir á umfjöllun um erlend mál­efni og eins áhuga á að horfa á heima­landið utan frá í víð­ara sam­hengi, ekki aðeins undir pott­loki, þá skuli einmitt verið að loka þessum sjónarhóli

Á frétta­stof­unni hefur nið­ur­skurð­ur­inn í þess­ari umferð bitnað á okkur sem störfum erlend­is. Ég  hef séð það sama ger­ast und­an­farin ár meðal nor­rænna starfs­bræðra hér í London, þeir eru orðnir fáir hér og erlent efni þá unnið heima í sparn­að­ar­skyni. Það er ögn dap­ur­legt að um leið og við sem vinnum erlendis finnum bæði fyrir meiri almennum áhuga heima fyrir á umfjöllun um erlend mál­efni og eins áhuga á að horfa á heima­landið utan frá í víð­ara sam­hengi, ekki aðeins undir pott­loki, þá skuli einmitt verið að loka þessum sjón­ar­hóli.“

Sig­rúnar seg­ist telja að glíma RÚV við stjórn­völd sé mikið áhyggju­efni, sér­stak­lega vegna þess að íslenskir einka­miðlar séu annað hvort und­ir­fjár­magn­aðir eða tengdir miklum sér­hags­mun­um. „Í íslensku fjöl­miðlaum­hverfi eru margir miðlar ýmist illa fjár­magn­aðir eða nátengdir sér­hags­munum sem bitnar bæði á frétta­efni og öðru efni. Þess vegna er glíma Rík­is­út­varps­ins við stjórn­völd um hlut­verk og fé kannski enn áhyggju­sam­legri einmitt á Íslandi þó sama sé að ger­ast hjá rík­is­fjöl­miðlum í öðrum lönd­um, til dæmis í Dan­mörku og Bret­landi. Allt er þetta hluti af sam­fé­lags­þróun sem sumir fagna og aðrir ótt­ast.“

Mik­ill nið­ur­skurður framundan



Stjórn­endur RÚV fóru á fund fjár­laga­nefndar á föstu­dag eftir að nefnd­ar­menn höfðu óskað eftir upp­lýs­ingum um af hvaða ­stærð­argráðu ­nauð­syn­legur nið­ur­skurður hjá fyr­ir­tæk­inu yrði að óbreyttu.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans nefndu stjórn­endur RÚV að nið­ur­skurð­ur­inn væri svip­aður að umfangi og tvær Rás 1 og umtals­vert til vibót­ar, öll inn­lend dag­skrár­gerð í sjón­varpi eða allt frétta­svið RÚV, en það sinn­ir frétt­u­m í öllum miðl­um, veðri, frétta­skýr­ing­ar­þáttum á borð við Kast­ljós og starf­semi á lands­byggð­inni.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None