Síldarvinnslan frestar arðgreiðslum vegna óvissu um innflutning til Rússlands

Gunnþór Ingvarsson
Auglýsing

Hlut­hafar Síld­ar­vinnsl­unnar í Nes­kaup­stað ákváðu það á aðal­fundi sínum í dag að fresta ákvörðun um arð­greiðslur vegna óvissunnar í tengslum við við­skipta­bann Rússa. Aðal­fund­ur­inn var hald­inn á Hótel Egils­búð í dag.

RÚV greinir frá þessu og hefur eftir Þor­steini Mál Bald­vins­syni, stjórn­ar­for­manni, að ekki sé úti­lokað að arður verði greiddur út síð­ar, enda sé eðli­legt að fyr­ir­tæki eins og Síld­ar­vinnslan greiði arð. Ekki verði ráð­ist í upp­sagnir vegna inn­flutn­ings­banns Rússa en vinnan gæti minnkað og starfs­fólk geri sér grein fyrir því.

Góð afkoma og tveir millj­arðar í arð í fyrra



Afkoma Síld­ar­vinnsl­unnar hefur verið góð und­an­farin ár. Þar vega þungt hag­stæðar aðstæður í upp­sjáv­ar­veiðum og vinnslu. Það er ekki síst til­koma mak­ríls í lög­sög­unni sem hefur haft veru­lega jákvæð áhrif á afkomu fyr­ir­tæk­is­ins. Hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins árið 2013 nam 5,6 millj­örðum króna og sjö millj­örðum króna árið 2012.

Á aðal­fundi í fyrra var ákveðið að arð­greiðslur til hlut­hafa vegna árs­ins 2013 yrðu tveir millj­arðar króna.

Auglýsing

Síld­ar­vinnslan hefur einnig styrkt sig í bol­fiski með kaupum á kvóta á síð­ustu árum.  Þar ber hæst kaup á Berg­i-Hug­inn í Vest­manna­eyj­um. Þá keypti Síld­ar­vinnslan hluta af kvóta Stál­skips í Hafn­ar­firði. Auk þess er félag í eigu Síld­ar­vinnsl­unn­ar, SVN eigna­fé­lag ehf. stór hlut­hafi í trygg­ing­ar­fé­lag­inu Sjóvá og hefur sú fjár­fest­ing skilað góðri ávöxtun nú þeg­ar. Síð­ast­liðið haust keypti Síld­ar­vinnslan svo útgerð­ar­fyr­ir­tækið Gull­berg á Seyð­is­firði.

Með þeim kaupum var ­Síld­ar­vinnslan orðin risi í íslenskum sjáv­ar­út­vegi með umtals­verðan kvóta í flestum helstu fiski­teg­undum við Ísland. Helstu eig­endur Síld­ar­vinnsl­unnar eru Sam­herji (45% hlut­ur), Gjögur (34%) og SÚN í Nes­kaup­stað (11%). Þess má geta að stór hlut­hafi í Gjögur er Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group og for­maður stjórnar Sam­taka atvinnu­lífs­ins.

Fram­kvæmda­stjór­inn gagn­rýnt þátt­töku Íslands



Gunn­þór Ingva­son, fram­kvæmda­stjóri Síld­ar­vinnsl­unn­ar, hefur gagn­rýnt þátt­töku Íslands í við­skipta­þving­unum gegn Rúss­landi. Áður en Rússar víkk­uðu út sitt inn­flutn­ings­bann vegna þving­an­anna skrif­aði Gunn­þór um málið á heima­síðu Síld­ar­vinnsl­unn­ar, þar sem hann sagði þátt­tök­una vera van­hugs­aða og gríð­ar­legir hags­munir þjóð­ar­bús­ins væru þar lagðir að veð­i. „Sé raun­veru­legur vilji til að aðstoða íslensk fyr­ir­tæki og gæta að hags­munum þjóð­ar­innar getur ráð­herra lýst yfir hlut­leysi stjórn­valda og reynt að vinda ofan af stuðn­ingi Íslands í aðgerðum gegn Rúss­um. Á þann hátt er sjálf­stæði Íslend­inga í utan­rík­is­málum und­ir­strik­að,“ sagð­i G­unn­þór.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None