Skjárinn, sem rekur meðal annars Skjáeinn, Skjábíó, Skjákrakka, Skjáheim, Skjásport og Útvarpsstöðina K100,5, hefur verið sameinaður Símanum. Þetta gerist í kjölfar sáttar við Samkeppniseftirlitið um að aflétta kvöðum á samstarfi félaganna frá árinu 2005. Með sáttinni er ákveðið að rekstur innlendrar línulegrar sjónvarpsdagskrár skuli vera efnahagslega og bókhaldslega aðskilinn frá öðrum rekstri Símans. Eftirlitsnefnd um jafnan aðgang fjarskiptafyrirtækja, EJAF, er ætlað að hafa eftirlit með framkvæmd sáttarinnar.
Síminn er því farinn að bjóða upp á sjónvarpsefni undir eigin hatti. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar Íslands í dag. Skjárinn var áður dótturfélag Símans.
Þar segir að Síminn muni eftir sameininguna bjóða upp á fjórþætta þjónustu: talsíma, farsíma, netþjónustu og sjónvarpsefni. Þannig þjónustframboð sé í samræmi við þróun sem eigi sér stað erlendis "þar sem afþreying og sjónvarpsefni tengjast fjarskiptaþjónustu sífellt sterkari böndum".
Samhliða um starfsemi Skjásins flytja að mestu í húsnæði Símans í Ármúla. Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Skjásins, mun vinna að sameiningunni en láta síðan af störfum. Engin sérstök yfirstjórn verður yfir sjónvarpsstarfsemi Símans.
Orri Hauksson, forstjóri Símans, segir þetta mjög spennandi breytingu. "Breytt skipulag gerir viðskiptavinum okkar kleift að nálgast alla þjónustu á einum stað. Sameiningin kemur í kjölfar mikilla breytinga á fjölmiðla- og fjarskiptamarkaði á undanförnum árum. Við höfum viljað breyta þeim kvöðum sem voru settar á sínum tíma og endurspegluðu stöðu sem er ekki til staðar lengur á markaðnum. Það er ljóst að þessu skrefi mun fylgja töluverð rekstrarhagræðing þar sem við rekum í einhverjum tilvikum svipaðar einingar á tveimur stöðum. Í kjölfar sameiningar mun ekki verða sérstök yfirstjórn yfir þeim þjónustuþáttum sem færast til Símans. Ég vil þakka Friðrik kærlega fyrir vel unnin störf á undanförnum árum og óska honum velfarnaðar."
Friðrik segir þetta skynsamlegt skref. "Fram að þessu var sameining ekki möguleg og okkur er flestum ljóst að núverandi fyrirkomulag aftraði framþróun beggja fyrirtækja Símans og Skjásins við að bæta þjónustuframboð sitt. Skjárinn hefur aldrei staðið betur en einmitt nú og ég er stoltur af þeim árangri sem náðst hefur með félagið á undanförnum árum og er viss um að þessi eðlilega breyting sé til farsældar bæði fyrir viðskiptavini Skjásins og starfsfólk félagsins.“