Skattar hafa hækkað í 132 skipti frá 2007

frostiolafs.jpg
Auglýsing

Frá árinu 2007 hafa verið gerðar 176 breyt­ingar á skatt­kerf­inu. Þar af hafa skattar verið hækk­aðir í 132 skipti og lækk­aðir í 44 skipti. Fyrir hverja skatta­lækkun hafa skattar því verið hækk­aðir þrisvar sinn­um.

Við­skipta­ráð Íslands birti í dag upp­fært yfir­lit yfir skatta­breyt­ingar und­an­far­inna ára. Í frétt á vef­síðu ráðs­ins er boð­uðum aðgerðum um lækkun og ein­földun tekju­skatta fagnað og afnám tolla á fatnað og skó sagt fagn­að­ar­efni. „Það er von Við­skipta­ráðs að stjórn­völd haldi áfram að lækka skatta á ný á kom­andi árum,“ segir á vef­síðu Við­skipta­ráðs.

Auglýsing


Veiga­mestu breyt­ing­arnar á skatt­kerf­inu frá árinu 2007 eru eft­ir­far­andi:

  • Tekju­skattur ein­stak­linga hefur hækkað um 34%
  • Útsvar hefur hækkað um 11%
  • Fjár­magnstekju­skattur hefur hækkað um 100%
  • Erfða­fjár­skattur hefur hækkað um 100%
  • Áfeng­is­gjöld hafa hækkað um 60%
  • Kolefn­is­gjöld á bensín og díselolíu hafa hækkað um 100%
  • Trygg­inga­gjald hefur hækkað um 37%
  • Útvarps­gjald hefur hækkað um 75%

Að mati Við­skipta­ráðs hefur þró­unin í skatta­málum verið jákvæð síð­ast­liðin tvö ár. „Ann­ars vegar hafa skatta­lækk­anir í fyrsta sinn verið jafn margar eða fleiri en hækk­anir og hins vegar fækk­aði breyt­ingum veru­lega árið 2015. Síð­ast­liðin tvö ár hafa verið gerðar 23 skatta­lækk­anir og 12 skatta­hækk­an­ir. Árið 2014 var fyrsta skiptið sem skatta­lækk­anir voru fleiri en skatta­hækk­anir frá því að úttektin var fyrst fram­kvæmd,“ segir í frétt ráðs­ins.



Við­skipta­ráð telur mik­inn fjölda breyt­inga und­an­farin ár skapa óhag­fellt umhverfi fyrir verð­mæta­sköpun á Íslandi. „Tíðar skatta­hækk­anir draga úr fyr­ir­sjá­an­leika við rekstur fyr­ir­tækja og fjár­hags­lega áætl­ana­gerð ein­stak­linga. Auk þess hafa fjöl­margir nýir skattar verið inn­leiddir á und­an­förnum árum sem eykur flækju­stig skatt­kerf­is­ins og dregur þannig úr gagn­sæi. Afleið­ing þess er að ein­stak­lingar eru ekki jafn með­vit­aðir og áður um þann kostnað sem þeir bera vegna skatt­greiðslna.“



Frétt Við­skipta­ráðs Íslands um breyt­ingar á skatt­kerf­inu frá 2007.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None