Skortur á efnislegum gæðum sá fimmti minnsti á Íslandi

10016471563_0af3028882_z.jpg
Auglýsing

Hlut­fall fólks sem skorti efn­is­leg gæði á Íslandi lækk­aði úr 6,6 pró­sent í 5,5 pró­sent milli áranna 2013 og 2014, sam­kvæmt nýbirtum nið­ur­stöðum úr lífs­kjara­rann­sókn Hag­stof­unn­ar. Eftir atvinnu­stöðu þá skera öryrkjar sig úr en árið 2014 skorti 23 pró­sent þeirra efn­is­leg gæði. Hlut­fallið var mun lægra meðal atvinnu­lausra, eða 12,5 pró­sent, og enn lægra á meðal ann­arra hópa. Skortur á efn­is­legum gæðum er tíð­ari meðal ein­stæðra for­eldra og barna þeirra en á meðal ann­arra heim­ils­gerða. Árið 2014 skorti 20,3 pró­sent þessa hóps efn­is­leg gæði. Til sam­an­burðar má nefna að hlut­fallið var 4,6 pró­sent á meðal þeirra sem bjuggu á heim­ilum tveggja full­orð­inna og tveggja barna. Þá var hlut­fallið nokkuð hátt á meðal ein­stak­linga undir 65 ára aldri sem búa einir á heim­ili, eða 15,1 pró­sent.

Þeir sem telj­ast við skort á efn­is­legum gæðum eru skil­greindir þannig að þeir búi á heim­ili þar sem þrennt af eft­ir­far­andi á við:

Auglýsing


1. Hefur lent í van­skilum hús­næð­is­lána eða ann­arra lána vegna fjár­skorts á síð­ast­liðnum 12 mán­uð­um.



2. Hefur ekki efni á að fara árlega í viku­langt frí með fjöl­skyld­unni.



3. Hefur ekki efni á kjöti, fiski eða sam­bæri­legri græn­met­is­mál­tíð að minnsta kosti annan hvern dag.



4. Getur ekki mætt óvæntum útgjöld­um.



5. Hefur hvorki efni á heima­síma né far­síma.



6. Hefur ekki efni á sjón­varps­tæki.



7. Hefur ekki efni á þvotta­vél.



8. Hefur ekki efni á bíl.



9. Hefur ekki efni á að halda hús­næð­inu nægj­an­lega heitu.

Fimmta lægsta hlut­fallið í Evr­ópu

Í sam­an­burði við önnur ríki Evr­ópu er Ísland með fimmta lægsta hlut­fallið á meðal þeirra landa sem taka þátt í evr­pósku lífs­kjara­rann­sókn­inni. Lægst var hlut­fallið í Sviss, þar sem það er 3,7 pró­sent, og eftir koma Sví­þjóð, Nor­egur og Lúx­em­borg. Hlut­fallið er hæst í Búlgar­íu, 58 pró­sent, og síðan Makedóníu þar sem hlut­fallið er 56,3 pró­sent. Í skýrslu Hag­stof­unnar er bent á að Norð­ur­löndin koma almennt vel út úr mæl­ing­unni.



Skortur á efnislegum gæðum í Evrópu



Í skýrslu Hag­stof­unnar er þró­unin einnig borin saman milli landa sem lentu illa í krepp­unni. Borin er saman þró­unin frá 2004 til 2013 á Írlandi, Íslandi, Spáni, í Grikk­landi og Eist­landi.



Skortur á efnislegum gæðum í kreppuríkjum.



„Á tíma­bil­inu 2004–2007 er hlut­fallið sem skortir efn­is­leg gæði nokkuð stöðugt á Íslandi, Írlandi og Spáni en ívið hærra í tveimur síð­ar­nefnd­ari lönd­un­um. Árið 2007 skorti 7,4% efn­is­leg gæði á Íslandi, 10,3% í Írlandi og 14,4% á Spáni. Á milli 2007 og 2008 lækk­aði hlut­fallið á Íslandi en hækk­aði svo eftir það fram til 2011 en helst svo nokkuð stöðugt. Þró­unin er með öðrum hætti á Írlandi, en hlut­fallið byrjar að hækka eftir 2007 og nær hámarki árið 2012 í 24,9% en lækkar svo lít­il­lega eftir það. Á milli 2007 og 2012 hækk­aði tíðni skorts á efn­is­legum gæðum í Írlandi þannig um 14,6 pró­sentu­stig eða 141,7 pró­sent. Á Íslandi var hlut­fallið hins­vegar ekki hærra eftir hrun en það hafði verið á árunum 2004-2007, eins og áður hefur komið fram. Á Spáni hækk­aði hlut­fallið eftir 2008, úr 10,8%, og var hæst árið 2013, eða 16,9%, sem er mun hóf­legri hækkun en á Írlandi.



Þró­unin er á annan veg í Grikk­landi og Eist­landi. Hlut­fallið sem skorti efn­is­leg gæði lækk­aði í báðum löndum á milli 2005 og 2008 en þó mun meira í Eist­landi en í Grikk­landi. Árið 2005 var hlut­fallið svipað í báðum lönd­um, eða 26,6% í Eist­landi og 26,3% í Grikk­landi. Árið 2008 var hlut­fallið komið niður í 21,8% í Grikk­landi en 12,4% í Eist­landi. Eftir það hækk­aði hlut­fallið í báðum lönd­um. Í Grikk­landi hækk­aði hlut­fallið hægt á milli 2008 og 2010, úr 21,8% í 24,1% en mun hraðar eftir það og árið 2013 skorti 37,3% efn­is­leg gæði í Grikk­landi. Í Eist­landi hækk­aði hlut­fallið mun hraðar á milli 2008 og 2010, úr 12,4% í 23,3% en lækk­aði svo aftur eftir það og árið 2014 skorti 19,4% íbúa Eist­lands efn­is­leg gæð­i,“ segir í skýrslu Hag­stof­unnar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None