Slitastjórn Kaupþings hyggst ekki tjá sig um hvort nauðasamningur slitabúsins gæti verið í uppnámi ef Vincent Tchenguiz, bresk-íranskur fjárfestir sem höfðað hefur mál gegn búinu, fær heimild hjá áfrýjunardómstóli í Bretlandi til að áfrýja skaðabótakröfu sinni gegn því.
ViðskiptaMogginn greindi frá því í morgun að Tchenguiz hafi fram að helgi til að sækja um áfrýjunarleyfið. Fái hann það þá er mögulegt að slitabú Kaupþings geti ekki klárað nauðasamning sinn fyrir áramót. Náist það ekki mun 39 prósent stöðugleikaskattur leggjast á búið.
Kjarninn óskaði eftir viðbrögðum slitastjórnar Kaupþings vegna þessarra tíðinda. Í svari starfsmanns hennar segir einfaldlega: „Slitastjórn Kaupþings hyggst ekki tjá sig um þetta“.
Vill fá 455 milljarða króna
Tchenguiz stefndi Grant Thornton í Bretlandi og tveimur starfsmönnum fyrirtækisins, Kaupþingi og Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni, sem situr í slitastjórn búsins, fyrir að hafa lagt á ráðin um, haft frumkvæði að og tekið þátt í, rannsókn bresku efnahagsbrotadeildarinnar Special Fraud Office (SFO), á honum og fyrirtækjum í hans eigu. Þetta hafi leitt til þess að hann var handtekinn á heimili sínu í mars 2011 og leitað var á skrifstofu hans og í fyrirtækjum í hans eigu. Hann vill fá 2,2 milljarða punda, um 455 milljarða króna, í bætur vegna þessa.
Tilgangurinn, að sögn Vincent Tchenguiz, var sá að nota rannsókn SFO á meintum glæpum hans til að knýja hann til að semja um málefni sinna félaga gagnvart Kaupþingi, afla gagna frá SFO, sem embættið gerði upptækt í húsleit hjá Vincent, sem Kaupþing hefði ella ekki getað aflað og síðan misnota þau gögn í samskiptum sínum við Vincent Tchenguiz. Hann telur að með þessu hafi Kaupþing viljað komast yfir eignir hans og fyrirtæki sem honum tengdust. Þetta átti að skila Kaupþingi auknum eignum og Grant Thornton í Bretlandi auknum greiðslum, þar sem starfsmenn fyrirtækisins myndu sjá um skipti á þeim eignum sem teknar yrðu yfir.
Um síðustu mánaðarmót hafnaði breskur undirdómstól málatilbúnaði Jóhannesar Rúnars um að þarlendir dómstólar hafi ekki lögsögu í máli sem athafnamaðurinn Vincent Tchenguiz hefur höfðað gegn honum. Jóhannes Rúnar vildi að málið yrði tekið fyrir á Íslandi þar sem einungis íslenskir dómstólar hefðu lögsögu yfir uppgjöri slitabús Kaupþings, en af því verður ekki.
Dómstóllinn taldi málið varða atburði sem áttu sér stað á breskri grundu og því verði þeir teknir fyrir af bresku réttarkerfi. Hins vegar var viðurkennt að breskir dómstólar hafi ekki lögsögu yfir slitabúi Kaupþings enda geri íslensk gjaldþrotalög ráð fyrir því að íslenskir dómstólar hafi einir lögsögu yfir þeim. Þeirri ákvörðun gæti Tchenguiz mögulega áfrýjað.
Eignir slitabús Kaupþings námu um síðustu áramót tæpum 800 milljörðum króna og stór hluti eigna búsins bundinn vegna kröfu Tchenguiz haldist hún lifandi.