Slóvakinn Magela eini eigandi Kredia og Smálána

kredia-vef.jpg
Auglýsing

Mario Magela, fjár­festir frá Slóvak­íu, er nú skráður eini eig­andi smá­lána­fyr­ir­tækj­anna Kredia og Smá­lána. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans keypti Magela félögin af Leifi Alex­ander Har­alds­syni í des­em­ber síð­ast­liðn­um. Breyt­ingin á eign­ar­hald­inu var hins vegar fyrst skráð inn hjá fyr­ir­tækja­skrá 23. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Megela er með víð­tæka starf­semi, meðal ann­ars með smá­lán, í Tékk­landi og Slóvak­íu. Þar rekur hann meðal ann­ars smá­lána­síð­una www.kredi­a.cz, sem byggir á íslensku fyr­ir­mynd­inni.

Keypti hlut í eig­anda Inkasso



Kjarn­inn greindi frá því í jan­úar síð­ast­liðnum að Magela hefði átt hlut í félagi sem hét DCG ehf.  Það félag var hins vegar á þeim tíma skráð að fullu í eigu Leifs Alex­and­ers Har­alds­sonar og hafði þá nýverið einnig keypt inn­heimtu­fyr­ir­tækið Inkasso, sem meðal hafði séð um inn­heimtu fyrir smá­lána­starf­semi. DCG ehf. átti á þeim tíma einnig Hóp­kaup, Heim­kaup, SpotOn og ýmis­legt ann­að.

Frá því í sept­em­ber er Magela hins vegar einn skráður eig­andi Kredia og Smá­lána. Inkasso er enn í eigu DCG ehf., sem heitir í dag Kaptura Eign­ar­hald og Rekstur ehf. Það félag er í 100 pró­sent eigu Leifs Alex­and­ers Har­alds­son­ar. Á meðal ann­arra eigna félags­ins er Heim­kaup.

Auglýsing

Önnur blokk í eigu kýp­versks félags



Smá­lána­heim­ur­inn á Íslandi hefur skipst í tvær blokk­ir. Ann­ars vegar eru fyr­ir­tækin Kredia og Smá­lán, sem eru í eigu Megela, og hins vegar eru fyr­ir­tækin Hrað­pen­ing­ar, 1909 og Múla. Þau þrjú síð­ast­nefndu eru öll í eigu félags á Kýpur sem heitir Jumdon Fin­ance Ltd. For­svars­menn fyr­ir­tækj­anna á Íslandi hafa ekki viljað gefa upp hverjir end­an­legir eig­endur Jumdon Fin­ance eru. Fjár­mála­eft­ir­lit­ið, sem hefur eft­ir­lit með starf­semi smá­lána­fyr­ir­tækja, og Fyr­ir­tækja­skrá, búa ekki yfir upp­lýs­ingum um hver end­an­legur eig­andi félag­anna er. Því er staðan sú að á íslenskum neyt­enda­mark­aði eru starf­andi þrjú lána­fyr­ir­tæki sem eng­inn, utan þeirra sem stýra því, veit hver á.

Sam­kvæmt fyr­ir­tækja­skrá hefur ekk­ert smá­lána­fyr­ir­tæki skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2013. Því liggur ekki fyrir hvernig rekstur þeirra gekk í fyrra, en hart hefur verið sótt að starf­sem­inni með hertri lög­gjöf. Rekst­ur­inn árin á undan gekk hins vegar prýði­lega og hagn­aður hljóp á tugum millj­óna króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None