Samningafundi SFR, SLFÍ og LL við samninganefnd ríkisins, sem fram fór í dag, var árangurslaus. Í tilkynningu frá SFR segir að ljóst hafi verið að fjármála- og efnahagsráðherra hefði sent samninganefnd sína án samningsumboðs á fundinn. "Hann var því árangurslaus og ekki var boðað til nýs fundar. Staðan í samningaviðræðum félaganna við ríkið er grafalvarleg enda skellur á allsherjarverkfall hjá félagsmönnum SFR og SLFÍ sem starfa hjá ríkinu þann 15. október ef samningar nást ekki fyrir þann tíma," segir í tilkynningunni.
Þar segir einnig að mikið beri á milli aðila. "Ríkisstjórnin, með fjármálaráðherra í broddi fylkingar, hefur ákveðið að hluti starfsmanna ríkisins, félagsmenn SFR og SLFÍ, eigi ekki að njóta sambærilegra launahækkana og aðrir ríkisstarfsmenn hafa fengið í gegnum gerðardóm og samninga. Fjármálaráðherra hefur lagt þá línu að ekki eigi að semja við starfsmenn sýslumannsembætta, tollstjóra, háskólans, landspítalans, fangaverði, sjúkraliða, lögreglumenn og fleiri á sambærilegum nótum. Þessi skilaboð frá fjármálaráðherra verða ekki skilin á annan hátt en að ríkisvaldið telur að þessar stéttir eigi ekki að njóta sambærilegra launabreytinga og aðrar stéttir hjá hinu opinbera."