Starfsgreinasamband Íslands sleit í dag samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins um endurnýjun kjarasamninga. „SGS hafnar nálgun SA um að halda áfram að byggja upp kaupmátt launa á grundvelli verðstöðugleika. Í stað þess er nálgun SGS að krefjast tugprósenta launahækkana sem mun leiða til mikillar verðbólgu á skömmum tíma og stökkbreyta verðtryggðum skuldum heimila og fyrirtækja, hækka vexti og fella gengi krónunnar,“ segir í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins vegna þessa. Enn fremur segir í tilkynningunni að SA hafi á „undanförnum vikum lagt fram ítarleg gögn og greiningar á samningafundum með SGS og hjá ríkissáttasemjara sem sýna að sú leið sem Starfsgreinasambandið vill fara er ófær. Verði hún farin mun hún valda samfélaginu miklu tjóni og gera að engu þann mikla árangur sem náðist í kjölfar síðustu kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.“
Innan SGS eru sextán aðildarfélög og tólf þúsund félagsmenn. SGS hefur lagt áherslu á að laun þeirra stétta sem eru með lægstu launin verði hækkuð verulega, eða um 20 til 30 prósent. Á meðan hefur SA horft til þess að svigrúm til launahækkana sé 3,5 til 5 prósent.
Þá segir í tilkynningu frá SA að ekki sé hægt að fallast á upplegg viðræðna. „SGS boða verkfallsaðgerðir en tjón sem verkföllin munu valda er alfarið á ábyrgð sambandsins. Samtök atvinnulífsins geta undir engum kringumstæðum fallist á að leggja upp í ferð sem vitað er að muni enda með ósköpum,“ segir í tilkynningu SA.