Starfsmenn Hafró gagnrýna harðlega fyrirkomulag haustralls

120610-Jupiter-60-for-Hafro-10.jpg
Auglýsing

Starfs­menn Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar harma ákvörðun stofn­un­ar­innar um að bjóða árlegt haustrall út, og að það sé nú fram­kvæmt af leigu­skipum á meðan rann­sókn­ar­skip Haf­rann­sókn­ar­stofn­un­ar, sem sinnt hafa verk­efn­inu frá árinu 1996, liggi bund­inn við bryggju. Þetta kemur fram í fund­ar­á­lyktun sem ­starfs­menn­irnir hafa sent fjöl­miðl­um.

Vegna bágrar fjár­hags­stöðu Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar var haustrall árs­ins boðið út til útgerða fiski­skipa, þar sem í boði var afla­mark og hlutur í afla­verð­mæti sem greiðsla fyrir haustrall­ið. Starfs­menn stofn­un­ar­innar hafa áhyggjur af því að með því hafi verið skapað for­dæmi þar sem leigu­skip verði tekin fram yfir rann­sókna­skip Haf­rann­sókn­ar­stofn­unn­ar, sem séu sér­hönnuð til vís­inda­rann­sókna.

Starfs­menn Hafró benda á að fyr­ir­komu­lagið feli ekki í sér sparn­að. And­virði afla­marks (786 þorskígild­stonn) og afla sem ríkið lætur tveimur útgerðum í té sé um 200 millj­ónir króna á meðan rekstr­ar­kostn­aður vegna úthalds rann­sókn­ar­skipa Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar til verks­ins sé áætl­aður um 25 millj­ónir króna.

Auglýsing

Fundur starfs­manna Haf­rann­sókn­ar­stofn­un­ar, sem hald­inn var 24. októ­ber síð­ast­lið­inn, lýsir yfir sér­stökum áhyggjum af langvar­andi nið­ur­skurði til stofn­un­ar­inn­ar, sem valdi því að hún sé komin í þá stöðu sem raun ber vitni og eigi erfitt með að sinna lög­bundnu hlut­verki sínu.

Árið 1996 hóf Haf­rann­sókn­ar­stofnun stofn­mæl­ingu botn­fiska að hausti, svo kallað haustrall, með það að mark­miði að auka gæði fisk­veiði­ráð­gjaf­ar. Með til­komu rann­sókna­skips­ins Árna Frið­riks­sonar árið 2000 hafa rann­sókna­skip Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, það er Árni Frið­riks­son og Bjarni Sæmunds­son, alfarið séð um fram­kvæmd haustralls.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None