Stjórn RÚV búin að fjalla um erindi Björgólfs - Stjórnarformaður vék af fundi vegna tengsla

15997511475-d225463e7d-z.jpg
Auglýsing

Ósk Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar um afsök­un­ar­beiðni vegna þess sem hann vill meina að hafi verið meið­andi umfjöllun Kast­ljóss um sig þann 23. júní síð­ast­lið­inn var tekin fyrir á stjórn­ar­fundi hjá Rík­is­út­varp­inu (RÚV) á mið­viku­dag. Guð­laugur Sverr­is­son, vara­for­maður stjórn­ar­inn­ar, segir að þar hafi verið ákveðið að vísa mál­inu til yfir­manna Kast­ljóss, útvarps­stjór­ans Magn­úsar Geirs Þórð­ar­sonar og frétta­stjór­ans Rakelar Þor­bergs­dótt­ur. Það sé ekki hlut­verk stjórnar RÚV að skipta sér að rit­stjórn eða efn­is­tökum Kast­ljóss.

Ingvi Hrafn Ósk­ars­son, for­maður stjórnar RÚV, vék af fund­inum á mið­viku­dag þegar málið var tekið fyr­ir. Hann vék einnig af fyrri fundi þegar bréf sem Björgólfur Thor sendi vegna sama máls í lok júní var tekið fyr­ir. Ástæðan er sú að lög­maður Björg­ólfs Thors í yfir­vof­andi hóp­mál­sókn gegn hon­um, sem var umfjöll­un­ar­efni Kast­ljós­s-þátt­ar­ins sem hann er ósáttur við, er Reimar Pét­urs­son. Ingvi Hrafn og Reimar báðir í eig­enda­hópi lög­manns­stof­unnar Lög­menn Lækj­ar­götu og Ingvi Hrafn stað­festir við Kjarn­ann að þau tengsl séu ástæða þess að hann vék af fund­un­um. Hann seg­ist enn­fremur ekki hafa tekið neinn þátt í umfjöllun um mál­ið.

Veru­lega ósáttur Björgólfur Thor



Björgólfur Thor  rit­aði í byrjun viku annað bréf til stjórnar RÚV ohf. þar sem hann ítrek­aði óskir sínar um afsök­un­ar­beiðni vegna þess sem hann vill meina að hafi verið meið­andi umfjöllun Kast­ljóss þann 23. júní síð­ast­lið­inn. Hann segir stjórn­endur þátt­ar­ins hafa gengið svo langt í svar­bréfi til sín að full­yrða að sekt hans sé sönn­uð.

Björgólfur Thor Björgólfsson. Björgólfur Thor Björg­ólfs­son.

Auglýsing

Í umfjöllun Kast­ljóss var fjallað um yfir­vof­andi hóp­mál­sókn á hendur Björgólfi Thor þar sem til stendur að stefna hon­um ­sem fyrrum aðal­eig­anda Lands­bank­ans fyrir að dylja raun­veru­legt eign­ar­hald sitt í bank­anum svo hann þyrfti ekki að upp­lýsa um stór­tæk lána­við­skipti sín við hann. Einnig vilja stefn­endur meina að Björgólfur Thor hafi ekki brugð­ist við þegar yfir­töku­skylda á bank­anum mynd­að­ist árið 2006. Hann hafi þannig brugð­ist skyldu sinni að vernda lög­bundin rétt­indi minni hlut­hafa í bank­an­um. Aðeins á að láta reyna á það fyrir dómi hvort bóta­skylda sé fyrir hendi gagn­vart hlut­höf­un­um.

Björgólfur Thor var mjög ósáttur með umfjöllun Kast­ljós og sendi bréf til stjórnar RÚV í byrjun júlí þar sem hann krafð­ist opin­berrar afsök­un­ar­beiðni. Hann hélt því einnig fram að RÚV hefðu brotið þau lög sem gildi um stofn­un­ina með því að „beita ófag­legum vinnu­brögð­um, láta sann­girni og hlut­lægni lönd og leið og láta ógert að leita upp­lýs­inga frá báðum aðilum eða kynna sjón­ar­mið þeirra sem jafn­ast.“

Beindi seinna erindi sínu ein­ungis til stjórnar



Í færslu sem birt­ist á blogg­síðu Björg­ólfs Thor­s, www.bt­b.is, í gær kemur fram að Þóra Arn­órs­dótt­ir, rit­stjóri Kast­ljóss, og Helgi Selj­an, sem vann innslagið um Björgólf Thor, hafi sent hon­um svar­bréf í lok júlí. Þar segir Björgólfur Thór að í bréf­inu hafi þau sagt ýmsar nýjar upp­lýs­ingar hafa komið fram í þætt­inum svo sem fund­ar­gerðir og tölvu­skeyti sem lög­maður í for­svari fyrir hóp­mál­sókn gegn honum hafði látið þeim í té.

Síðan segir Björgólfur Thor: „Að mati rit­stjóra og frétta­manns vörp­uðu þessi ein­hliða gögn „meðal ann­ars ljósi á það hver til­gang­ur­inn var með breyt­ingu á eign­ar­haldi á hluta­bréf­um. Eign­ar­haldið var fært á milli aðila til að koma í veg fyrir að Björgólfur Thor kæm­ist í þá stöðu að Lands­bank­inn þyrfti að upp­lýsa um við­skipti sín við hann og einnig að aðilar telj­ist yfir­töku­skyldir sam­kvæmt lög­um.“

Ég ætl­aði vart að trúa mínum eigin augum þegar ég las þessa játn­ingu rit­stjóra og frétta­manns á því hvernig RÚV metur gögn ann­ars aðila í boð­uðu dóms­máli og kynnir fyrir lands­mönnum öllum sem fag­lega, sann­gjarna og hlut­læga frá­sögn.

Að þessu sinni er erindi mínu ein­göngu beint að stjórn RÚV ohf., enda ber stjórnin ábyrgð á að farið sé að lögum í starf­semi Rík­is­út­varps­ins og þarf að gera aðal­fundi grein fyrir því á ári hverju hvernig tek­ist hefur að upp­fylla lög­bundnar skyldur Rík­is­út­varps­ins um fjöl­miðla­þjón­ustu í almanna­þág­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None