Stjórnarandstaðan fer fram á nýja leiðréttingarskýrslu

15810011880_7d283983e0_z.jpg
Auglýsing

Tíu þing­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna á Alþingi hafa sam­eig­in­lega óskað eftir nýrri skýrslu um nið­ur­færslu verð­tryggðra fast­eigna­lána, hina svoköll­uðu leið­rétt­ingu, þar sem skýrsla Bjarna Bene­dikts­son­ar, sem skilað var síð­ast­lið­inn mánu­dag, hafi ekki svarað öllum þeim spurn­ingum sem hún átti að gera. Þing­menn­irnir tíu fara meðal ann­ars fram á að fá að vita hvernig heild­ar­upp­hæð leið­rétt­ing­ar­inn­ar, um 80,4 millj­örðum króna, skipt­ist eftir tekjum á milli allra fram­telj­enda árið 2014, hvort sem þeir nutu lækk­unar eða ekki og hvernig heild­ar­upp­hæðin dreif­ist á milli allra fram­telj­enda eftir hreinum eign­um.

Þing­menn­irnir tíu sem leggja fram beiðn­ina eru Katrín Jak­obs­dótt­ir, Árni Páll Árna­son, Birgitta Jóns­dótt­ir, Róbert Mars­hall, Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, Katrín Júl­í­us­dótt­ir, Bjarkey Olsen Gunn­ars­dótt­ir, Oddný Harð­ar­dótt­ir, Bryn­hildur Pét­urs­dóttir og Lilja Raf­ney Magn­ús­dótt­ir.

Tók átta mán­uði að svara fyr­ir­spurn



Í grein­ar­gerð sem fylgir beiðn­inni segir að Katrín Jak­obs­dóttir hafi lagt fram fyr­ir­spurn í 15 liðum um nið­ur­færslu verð­tryggðra fast­eigna­lána 11. nóv­em­ber 2014. Þar segir enn­frem­ur: "Tæpum mán­uði seinna barst „svar“ fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þar sem engri spurn­ingu var svarað efn­is­lega en svörum lofað á vor­þingi með fram­lagn­ingu sér­stakrar skýrslu ráð­herra um aðgerð­ina. Málið olli nokkru upp­námi á Alþingi og svar­aði ráð­herra í kjöl­farið fimm af 15 spurn­ingum þing­manns­ins 29. jan­ú­ar. Beðið var eftir frek­ari svörum í fimm mán­uði til við­bótar og 29. júní sl. birti fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra svo loks skýrslu sína um lækkun höf­uð­stóls verð­tryggðra hús­næð­is­veð­lána (809. mál). ­Skýrslan svarar því miður ekki öllum þeim spurn­ingum sem settar voru fram í fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dóttur tæpum átta mán­uðum áður. Sér­stak­lega vantar svör við 1., 2. og 3. tölul. fyr­ir­spurn­ar­innar og er hér leit­ast við að fá loks­ins svör við þessum spurn­ing­um. Að auki er farið fram á upp­lýs­ingar um hlut­fall skulda­nið­ur­færsl­unnar eftir eigna­stöðu og eftir tekjum miðað við árið 2014, en upp­lýs­ingar þar að lút­andi ættu nú í sumar að geta verið unnar úr skatt­fram­tölum fyrir það ár."

Spurn­ing­arnar fimm sem stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn­irnir vilja fá svör við eru eft­ir­far­andi:

Auglýsing


  1. Hvernig skipt­ist heild­ar­upp­hæð þeirrar fjár­hæðar sem varið hefur verið til lækk­unar verð­tryggðra fast­eigna­veð­lána ein­stak­linga milli beinnar höf­uð­stólslækk­unar á fast­eigna­veð­lánum ein­stak­linga og frá­drátt­ar­liða, svo sem fast­eigna­veð­krafna án veð­trygg­inga, van­skila og greiðslu­jöfn­un­ar­reikn­inga?


  2. Hverjir eru frá­drátt­ar­lið­irnir og hver er skipt­ingin milli þeirra í krónum talið?


  3. Hvert er heild­ar­hlut­fall beinnar höf­uð­stólslækk­un­ar, þ.e. lækk­unar höf­uð­stóls að und­an­skildum frá­drátt­ar­lið­um, af verð­tryggðum fast­eigna­veð­lán­um?


  4. Hvernig dreif­ist heild­ar­upp­hæðin sem varið hefur verið til lækk­unar verð­tryggðra hús­næð­is­lána eftir tekjum á milli allra fram­telj­enda árið 2014, hvort sem þeir nutu lækk­unar eða ekki? Hvert er hlut­fall heild­ar­upp­hæð­ar­innar sem skipt­ist niður á tekju­bil hvers tíunda hluta fyrir sig, miðað við eignir á árinu 2014? Hver er fjöldi fram­telj­enda á bak við hvert tekju­bil?


  5. Hvernig dreif­ist heild­ar­upp­hæðin sem varið hefur verið til lækk­unar verð­tryggðra hús­næð­is­lána á milli allra fram­telj­enda árið 2014 eftir hreinum eign­um, þ.e. eignum umfram skuld­ir? Hvert er hlut­fall heild­ar­upp­hæð­ar­innar sem skipt­ist niður á eigna­bil hvers tíunda hluta fyrir sig, miðað við eignir á árinu 2014? Hver er fjöldi fram­telj­enda á bak við hvert eigna­bil?


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None