Ingvi Hrafn Óskarsson, lögmaður og stjórnarformaður RÚV, skrifar harðyrta grein í Morgunblaðið í dag undir fyrirsögninni „Rökþrot þingmannsins?“ þar sem hann ræðst að fullyrðingum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, alþingismanns, um fjármál félagsins.
Í greininni sakar Ingvi Hrafn Guðlaug Þór um að hafa sett fram hæpnar fullyrðingar um fjármál Ríkisútvarpsins að undanförnu. „Hefur hann m.a. borið brigður á þá kunnu staðreynd, sem greint var frá í fréttatíma Ríkisútvarpsins, að Alþingi hefur jafnan ákveðið í fjárlögum að Ríkisútvarpið fái ekki útvarpsgjaldið óskert. Taldi fréttastofa Ríkisútvarpsins óhjákvæmilegt að árétta frétt sína um útvarpsgjaldið af þessu tilefni. Guðlaugur telur sig greinilega hafa fengið hirtingu sem undan svíður og krefst nú afsökunar frá Ríkisútvarpinu.“
Staðlausir stafir þingmannsins um fjármál RÚV
Þá skrifar stjórnarformaður RÚV: „Vandinn er hins vegar sá að á undanförnum vikum hefur Guðlaugur ítrekað ferið fram með staðlausa stafi um fjármál Ríkisútvarpsins og beitt fyrir sig útúrsnúningum sem hvergi snerta kjarna málsins. Hann verður að sætta sig við að á það sé bent.“
Ingvi Hrafn sakar Guðlaug Þór um að hafa borið á borð „talnaleikfimi“ með því að vísa hálfan áratug, eða lengra, aftur í tímann til þess að finna rökstuðning fyrir máli sínu. „Guðlaugur burðast við að reikna út hver fjárframlög Ríkisútvarpsins voru fyrir árið 2009, með mistækum árangri, eins og það hafi nokkra einustu þýðingu fyrir umræðu um þá stöðu sem nú er uppi.“
Einkennilegur viðsnúningur
Ingvi Hrafn bendir á í grein sinni að á síðastliðnum fimm árum hafi um 1.650 milljónum króna af innheimtu útvarpsgjaldi verið ráðstafað til annarra verkefna hins opinbera. „Einkennilegast er þó að Guðlaugur bregst ekki við áréttingu Ríkisútvarpsins með því að draga fram staðreyndir málsins, t.d. með því að leggja fram upplýsingar úr fjárlögum undangenginna ára. Þess í stað kveður hann Steingrím J. Sigfússon, fyrrverandi fjármálaráðherra, til vitnis í málinu, þar sem Steingrímur mun einhvern tímann hafa sagt eitthvað svipað og hann sjálfur. Það virðist að mati þingmannsins vera fullnægjandi grundvöllur fyrir kröfu hans um afsökun.“
Að endingu skrifar stjórnarformaður RÚV: „Hlýtur að teljast nokkurt nýmæli að þingmaður Sjálfstæðisflokksins leggi slíkt traust á yfirlýsingar og upplýsingar frá Steingrími J. Fram til þessa hefur traust milli þingmannanna tveggja ekki virst gagnkvæmt. Það skyldi þó ekki vera að Guðlaugur grípi þetta síðasta hálmstrá þegar rökþrot blasir við?“