Stjórnir MP banka hf. og Straums fjárfestingabanka hf. hafa samþykkt áætlun um samruna félaganna og miðast samruninn við 31. desember 2014. Þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu frá MP banka og Straumi.
Samruninn er háður samþykki hluthafafundar beggja banka, Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. Vonir standa til þess að nýr, sameinaður banki hefji starfsemi með haustinu. Bankinn mun starfa undir nýju heiti sem verður kynnt síðar.
Skipting hlutafjár í hinu sameinaða félagi verður þannig að núverandi hluthafar MP banka hf. munu eiga 58,66% af virku hlutafé en núverandi hluthafar Straums fjárfestingabanka hf. munu eignast 41,34% af virku hlutafé.
„Sameining MP banka og Straums fjárfestingabanka hefur augljósan ávinning í för með sér fyrir hluthafa beggja félaga. Sameinaður banki verður með sterka stöðu á sviði fjárfestingabankastarfsemi og eignastýringar og mun horfa til frekari sóknarfæra á þeim sviðum,“ segir í tilkynningunni frá bönkunum.