Stundin leitar að nýjum hluthöfum - heimild til að auka hlutafé

20150105_Stundin_352_cc.jpg
Auglýsing

Stjórn útgá­fé­lags Stund­ar­inn­ar, sem gefur út mán­að­ar­legt áskrift­ar­blað og rekur frétta­vef, hefur heim­ilað hluta­fjár­aukn­ingu sem nú stendur yfir. Þetta kemur fram í athuga­semd frá stjórn­inni á síðu fjöl­miðla­nefndar þar sem eign­ar­hald mið­ils­ins er til­greint.

Í dag eru eig­endur Stund­ar­innar fimm tals­ins. Félagið Góður punktur ehf, í eigu Reynis Trausta­son­ar, fyrrum rist­jóra DV og eig­in­konu hans, á 20 pró­sent, rit­stjórar Stund­ar­inn­ar, þau Jón Trausti Reyn­is­son og Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir eiga sinn fimmt­ungin hvor og það eiga Heiða B. Heið­ars og Jón Ingi Stef­áns­son, sem bæði starfa á Stund­inni, líka.

Í DV í dag er sagt frá því að sam­kvæmt heim­ildum blaðs­ins hafi eig­endur Stund­ar­innar meðal ann­ars rætt við fjár­sterka ein­stak­linga úr íslensku við­skipta­lífi um að ger­ast hlut­haf­ar. Þar er einnig rætt við Ingi­björgu Dögg sem segir að hóp­ur­inn sem stofn­aði Stund­ina muni áfram eiga meiri­hluta í henni en að lagt verði upp með að fá sem flesta með í liðið og hafa eign­ar­haldið sem breið­ast. Nýir hlut­hafar geti ekki keypt sig inn í félagið fyrir hærri upp­hæð en tvær og hálfa milljón króna.

Auglýsing

Stundin hóf starf­semi í upp­hafi árs. Að miðl­inum stendur hópur sem áður stýrði DV, en var ýtt frá eftir eig­enda­á­tök síð­sum­ars 2014. Fé til rekst­urs­ins var safnað í gegnum hóp­fjár­mögn­un­ar­síð­una Karol­ina Fund þar sem hún setti ýmis met. Tak­marki söfn­un­ar­innar var meðal ann­ars náð á tveimur sól­ar­hringum og alls söfn­uðu þau 45 þús­und evr­um, um 6,7 millj­ónum króna. Ítar­lega var fjallað um verk­efnið í Kjarn­anum á sínum tíma.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None