Stýrivextir óbreyttir - Vaxtahækkun í kortunum

10016524533-0ff5c08222-z1.jpg
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bank­ans óbreytt­um. Meg­in­vextir bank­ans, vextir á sjö daga bundnum inn­lán­um, verða því áfram 4,5%. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Seðla­bank­an­um.

„Sam­kvæmt nýbirtri spá Seðla­bank­ans verður hag­vöxtur um 4½ pró­sent í ár og að með­al­tali tæp­lega 4% á ári á spá­tím­an­um, sem er meiri vöxtur en bank­inn spáði í febr­ú­ar. Fram­leiðslu­spenna mynd­ast á þessu ári og nær hámarki á því næsta. Bat­inn á vinnu­mark­aði hefur færst í auk­ana að und­an­förnu. Sé tekið mið af hinum miklu launa­kröfum sem nú eru uppi mætti ætla að spenna á vinnu­mark­aði sé nú þegar til staðar eða að slaki hafi a.m.k. minnkað hraðar en sam­rým­ist verð­stöð­ug­leika. Verð­bólga er enn lítil og lít­ils háttar lækkun verð­lags mælist sé horft fram hjá áhrifum hús­næð­is­kostn­að­ar. Lítil alþjóð­leg verð­bólga og stöðugt gengi krónu hafa haldið aftur af verð­bólgu og vegið á móti áhrifum tölu­verðra launa­hækk­ana inn­an­lands. Verð­bólgu­horfur hafa hins vegar versnað frá síð­ustu spá Seðla­bank­ans. Líkur á hag­stæðu sam­spili lít­illar inn­fluttrar verð­bólgu og hóf­legra kjara­samn­inga virð­ast nú hverf­andi, enda hafa verð­bólgu­vænt­ingar hækkað frá síð­ustu spá eftir að hafa lækkað í mark­mið í upp­hafi árs. Sam­kvæmt grunn­spá bank­ans fer verð­bólga yfir mark­mið strax í upp­hafi næsta árs og lík­legra er að verð­bólga verði meiri en spáð er en að hún verði minni. Fram­vinda kjara­við­ræðna eftir að spáin var gerð hefur aukið þessa hættu enn frekar,“ segir í til­kynn­ingu frá Seðla­bank­an­um.

Vaxta­lækkun Seðla­bank­ans undir lok síð­ast­lið­ins árs var byggð á snar­pri hjöðnun verð­bólgu og lækkun verð­bólgu­vænt­inga, segir í til­kynn­ing­unni. Þetta leiddi til hækk­unar raun­vaxta umfram það sem efna­hags­á­stand og nær­horfur voru þá taldar gefa til­efni til. Í yfir­lýs­ingum nefnd­ar­innar á þeim tíma var hins vegar bent á að miklar launa­hækk­anir og sterkur vöxtur eft­ir­spurnar gætu grafið undan nýfengnum verð­stöð­ug­leika og valdið því að hækka yrði vexti á ný. Þróun kjara­við­ræðna að und­an­förnu ásamt hækkun verð­bólgu­vænt­inga og vís­bend­ingum um öfl­ugan vöxt eft­ir­spurnar benda til þess að þessar aðstæður séu nú að skap­ast og því lík­legt að hækka þurfi vexti þegar á næsta fundi nefnd­ar­innar í júní, að því er segir í til­kynn­ing­unni.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None