Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina, tók sæti á Alþingi í dag í stað Vigdísar Hauksdóttur, sem mun ekki geta sinnt þingstörfum á næstunni. Sveinbjörg Birna er varaþingmaður flokksins og hefur áður tekið sæti á Alþingi.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir.
Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, upplýsti um þetta við upphaf þingfundar í dag.
Auglýsing
Vigdís upphandlegsbrotnaði á Grænlandi í byrjun febrúar. Þar var hún stödd á fundi Vestnorræna ráðsins. Vigdís rann í hálku og brotnaði illa. Vigdís fór í aðgerð á Landsspítalanum fyrir skemmstu þar sem beinið var neglt saman.