Tæplega fjögur þúsund útskrifast frá VIRK starfsendurhæfingu

10016394766-a517f60534-z.jpg
Auglýsing

Af þeim 7.700 ein­stak­lingum sem hafa leitað til VIRK starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóðs frá upp­hafi hafa tæp­lega 3.800 ­manns útskrif­ast úr úrræð­inu. Þrír af hverjum fjórum þess­ara ein­stak­linga eru virkir á vinnu­mark­aði, í virkri atvinnu­leit eða láns­hæfu námi.

Um 2.400 manns voru í þjón­ustu hjá ­VIRK í lok síð­asta árs. Tæp­lega 1.800 ein­stak­lingar komu nýir inn í þjón­ustu VIRK á árinu, sem eru um 9 pró­sentum fleiri en árið á und­an­. Að því er fram kemur í frétt frá VIRK eru vís­bend­ingar um að aðsókn að sjóðnum gæti verið að ná jafn­vægi eftir mik­inn vöxt síð­ustu ár.

Fram­lög dregin veru­lega saman



Kjarn­inn greindi frá því fyrir jól að VIRK muni ekki taka við ein­stak­lingum sem standa utan vinnu­mark­að­ar, eru örorku­líf­eyr­is­þegar eða skjól­stæð­ingar félags­mála­stofn­ana á árinu. Þetta var til­kynnt til Eyglóar Harð­ar­dótt­ur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, í kjöl­far þess að fjár­lög voru sam­þykkt. Í fjár­lögum var gert ráð fyrir að fram­lag til VIRK yrðu 200 millj­ónir í ár, en sam­kvæmt lögum og samn­ingum sem hafa verið und­ir­rit­aðir átti fram­lag rík­is­ins til VIRK að vera 1,1 millj­arður króna á árinu 2015. Þar sem ekki hafi verið staðið við sam­komu­lag gæti VIRK ekki tekið ein­stak­linga í þjón­ustu sem ekki væri greitt iðgjald af.

VIRK er eini starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóður lands­ins og sam­kvæmt lögum eiga atvinnu­rek­end­ur, líf­eyr­is­sjóðir og íslenska ríkið að fjár­magna hann. Sjóð­ur­inn er sjálfs­eign­ar­stofnun en ekki opin­ber stofnun og því getur ríkið ekki tekið ein­hliða ákvörðun um nið­ur­skurð hans. ­Ríkið átti síð­an, sam­kvæmt lög­unum sem sam­þykkt voru árið 2012 og samn­ingum sem voru gerðir þegar VIRK var sett á fót, að greiða fram­lag til sjóðs­ins. Það fram­lag átti meðal ann­ars að fjár­magna starfsend­ur­hæf­ingu þeirra ein­stak­linga sem eru atvinnu­laus­ir, þiggja örorku­líf­eyri eða eru skjól­stæð­ingar félags­mála­stofn­ana.

Auglýsing

Stjórn­ar­for­maður VIRK sagði í bréfi sínu til félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra að sjóðnum hafi verið mætt með óbil­gjörnum kröfum um mik­inn nið­ur­skurð í starf­semi, þrátt fyrir að hún hafi skilað miklum ávinn­ingi. Þá hafi virst sem svo að vara­sjóður sem byggður hafi verið upp til þess að mæta óvissri fram­tíð sjóðs­ins vera stjórn­völdum þyrnir í aug­um.

Eygló Harð­ar­dóttir sagði í kjöl­far ákvörð­unar VIRK að það væri ekki hlut­verk VIRK að safna í sjóð. Uppi væri ágrein­ingur um fram­lög þeirra þriggja aðila sem eigi að leggja sjóðnum til fé. „Ég tel eðli­legt að lækka fram­lögin þannig að ekki verði óeðli­leg sjóðs­söfn­un, aðhalds verði gætt í rekstr­inum og að allir aðil­arnir þrír greiði jafnt í sjóð­inn,“ sagði hún þá.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None