Hagnaður Íslenskra verðbréfa árið 2014 af reglulegri starfsemi var um 130 milljónir króna í fyrra, samanborið við 160 milljónir króna árið 2013. Á árinu voru gjaldfærðar 291 milljónir króna vegna uppgjörs afleiðusamninga í kjölfar niðurstöðu dómsstóla í janúar á þessu ári. „Tap varð þannig af rekstri samstæðunnar á árinu 2014 upp á 118,4 milljónir króna samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við 138,3 milljóna króna hagnað árið 2013,“ segir í tilkynningu frá Íslenskum verðbréfum.
Hreinar rekstrartekjur ársins námu 539 milljónum króna samanborið við 584 milljónum króna árið 2013.
Eigið fé í árslok 2014 nam 473 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi og eiginfjárhlutfall samstæðunnar í árslok 22,6%.
Heildareignir félagsins í stýringu voru þær sömu í lok árs og í upphafi þess, segir í tilkynningu, og stýrir félagið nú 112 milljörðum króna fyrir einstaklinga, félagasamtök og fagfjárfesta. Alls voru rúmlega tvö þúsund einstaklingar og lögaðilar með fjármuni í eignastýringu og vörslu hjá félaginu.
Nýr framkvæmdastjóri tekur við
Í desember á síðasta ári fékk Straumur fjárfestingarbanki hf., ásamt Íslenskri eignastýringu ehf., heimild frá FME til þess að fara með yfir 50% eignarhlut í félaginu, eins og greint hefur verið frá á vef Kjarnans. „Við það var ákveðinni óvissu sem verið hafði um eignarhald félagsins eytt,“ segir í tilkynningu.
Stjórn félagsins réð Sigþór Jónsson, sem áður var starfsmaður Straums, sem framkvæmdastjóra í febrúar síðastliðnum.
Sigþór segist í tilkynningu vera ánægður með rekstur félagsins á árinu 2014. „Við getum ekki annað en verið nokkuð sátt við þessa niðurstöðu, ekki síst þegar horft er til þeirrar óvissu sem hefur ríkt um eignarhald og framtíðarsýn félagsins,“ segir Sigþór. Hann segir gott og traust orðspor félagsins, vera aðalsmerki þess. „Starfsemi Íslenskra verðbréfa felst eingöngu í því að gæta hagsmuna viðskiptavina sinna en félagið stundar hvorki útlánastarfsemi né fjárfestir fyrir eigin reikning.”
Sigþór bætir við að árið hafi verið viðburðarríkt hjá Íslenskum verðbréfum. „Mikill kraftur er í starfsemi félagsins nú um stundir, stofnaðir voru tveir nýir sjóðir á árinu 2014 og er aukin þjónusta í þróun hjá félaginu sem verður kynnt fjárfestum á næstum mánuðum. Rekstur sjóða og safna gekk almennt vel á árinu og skiluðu þeir hagnaði fyrir viðskiptavini félagsins. Framtíðin er því bæði björt og spennandi fyrir viðskiptavini félagsins,“ segir í tilkynningu frá félaginu.