Telja framkvæmdastjórn um losun hafta klofna

kjarninn_bjarni_vef.jpg
Auglýsing

Fram­kvæmda­stjórn um losun fjár­mags­hafta, sem skipuð var af stjórn­völdum í júlí síð­ast­liðn­um, ­hefur und­an­farið fundað með slita­stjórnum ­Glitn­is, Lands­bank­ans og Kaup­þings, sem fara með þessi þrjú stærstu þrotabú Íslands­sög­unn­ar. Um er að ræða fyrstu form­legu fundi sem full­trúar stjórn­valda hafa átt með þeim vegna mögu­legrar los­unar á fjár­magns­höftum sem sett voru síðla árs 2008.

Í fram­kvæmda­stjórn um losun fjár­magns­hafta sitja Glenn Victor Kim, fjár­mála­ráð­gjafi hjá LJ Capital, sem leiðir verk­efn­ið, Bene­dikt Gísla­son ráð­gjafi, Eiríkur Svav­ars­son hæsta­rétt­ar­lög­maður og Freyr Her­manns­son, for­stöðu­maður fjár­stýr­ingar Seðla­banka Íslands. Fram­kvæmda­stjórnin heyrir undir stýrinefnd sem leidd er af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Tveir skólar eru ráð­andi um það hvernig eigi að ljúka skiptum búanna. Annar gengur út á að gera það með því að semja við slita­stjórnir föllnu bank­anna og kröfu­hafa þeirra um að gera slíkt án þess að nauða­samn­ingar ógni greiðslu­jöfn­uði Íslands. Hin leiðin er svokölluð gjald­þrota­leið, sem gengur út á að knýja búin í þrot og að dótt­ur­fé­lag Seðla­banka Íslands eða skipta­stjóri verði lát­inn taka yfir eignir þeirra og þær síðan seldar til nýrra eig­enda. Afrakstr­inum verði skipt milli kröfu­hafa og þeir myndu fá allt sitt greitt í íslenskum krón­um.

Auglýsing

Sam­kvæmt þeim við­mæl­endum Kjarn­ans sem setið hafa fundi með fram­kvæmda­stjórn­inni virð­ist helm­ingur henn­ar, Kim og Bene­dikt, vera á því að semja en hinn helm­ing­ur­inn, Freyr og Eirík­ur, vera hrifn­ari af gjald­þrota­leið­inni.

Mega ekki ógna greiðslu­jöfn­uði



Slita­stjórnir Kaup­þings og Glitnis sóttu um und­an­þágu­heim­ild frá fjár­magns­höftum síðla árs 2012 til að ljúka nauða­samn­ingum sín­um. Seðla­bank­inn hefur sagt að ekki séu for­sendur til að ljúka nauða­samn­ingi með þeim hætti sem sóst var eft­ir. Frum­for­senda þess að hægt sé að ljúka slíkum samn­ingum sé að fyrir liggi nákvæm grein­ing á eignum og end­ur­heimtum þrota­bú­anna með til­liti til áhrifa á útgreiðslu þeirra til kröfu­hafa á greiðslu­jöfnuð Íslands.

Slita­stjórn­irnar töldu sig hafa fengið skil­boð um að í þess­ari viku yrðu lagðar fyrir þær upp­lýs­ingar um hvers konar skil­yrði stjórn­völd teldu að þær þyrftu að upp­fylla þannig að greiðslu­jöfn­uði yrði ekki ógn­að. Á fund­unum með fram­kvæmda­stjórn­inni kom hins vegar fram að ekk­ert slíkt stendur til strax.

Fréttin er hluti af ítar­legri umfjöllun um losun fjár­magns­hafta sem birt­ist í síð­ustu útgáfu Kjarn­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None