Þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Diljá Mist Einarsdóttir, hvetur samstarfsfólk sitt á Alþingi að einfalda reglur „í stað þess að bæta í“ og að passa sig á því að kaffæra ekki litla rekstraraðila í óhóflegum kröfum og eftirliti.
Þetta kom fram í máli þingmannsins undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag.
Byrjaði hún á því að nefna frumvarp Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra um að fella nikótínvörur, og þar með nikótínpúða, undir lög um rafrettur en umræður um frumvarpið fóru fram á Alþingi í gær.
Allir eiga að vera „bæði með belti og axlabönd“
Diljá Mist sagði að með frumvarpinu væri reynt að hafa vit fyrir fullorðnu fólki, meðal annars með reglum um hvers konar bragðefni það gæti valið og hvar það mætti stinga púða undir vörina.
„Við Íslendingar megum ekki kaupa vín á kvöldin, á sunnudögum og alls ekki í netverslun, nema auðvitað að það sé erlend netverslun. Við erum með ríkisútvarp og við erum með ríkisstyrktan póst. Regluverkið okkar og rekstrarumhverfi fyrirtækja í landinu er að mörgu leyti allt of flókið. Eftirlitið er mikið og kröfur til aðila með afmarkaðan og einfaldan rekstur óhóflegar.
Valdhafar hafa ríka tilhneigingu til að vilja stýra sem mestu, skipta sér sem mest af fólki, hafa vit fyrir því, setja reglur, gera meiri kröfur í stað þess að létta á. Allir eiga að vera bæði með belti og axlabönd, bæði bókstaflega og ekki,“ sagði hún.
Í lokin hvatti hún, eins og áður segir, kollega sína til að treysta fólki betur, treysta því til að ráða sér sjálft og bera ábyrgð á sér sjálft – auðvitað svo lengi sem fólk gengi ekki á rétt annarra. Hún vildi „hvetja þá til þess að einfalda reglur í stað þess að bæta í, að við pössum okkur á því að kaffæra ekki litla rekstraraðila í óhóflegum kröfum og eftirliti. Við gætum þá séð meira frelsi, minni sóun og meiri framleiðni.“