„Þessi kreddupólitík bitnar nú allhressilega á fólkinu í landinu“

Þingmaður Samfylkingarinnar vandaði ríkisstjórninni ekki kveðjurnar á þingi í vikunni.

Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frostadóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

„Ætlar ein­hver í hæst­virtri rík­is­stjórn Íslands að taka ábyrgð á stöðu efna­hags­mála í dag? Er hæfnin til stað­ar? Treystir fólk sér til að við­ur­kenna hag­stjórn­ar­mis­tök?“

Kristrún Frosta­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hóf ræðu sínu undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni á því að spyrja þess­ara spurn­inga.

Hún sagði að 400 millj­arðar króna væri upp­hæðin sem heim­ilin í land­inu hefðu skuld­sett sig fyrir efna­hags­bat­anum fyrir til­stuðlan þess­arar rík­is­stjórnar sem hefði beðið of lengi með mark­vissar aðgerðir þegar COVID-far­ald­ur­inn skall á.

Auglýsing

Rík­is­stjórnin þarf að „sjá að sér, losa sig við kreddur og ráð­ast í neyð­ar­að­gerð­ir“

Þing­mað­ur­inn sagði enn fremur að rík­is­stjórnin hefði treyst á emb­ætt­is­menn í Seðla­bank­anum til að bjarga mál­unum og stíga inn í með almennar örv­un­ar­að­gerðir á tímum sér­tæks áfalls, aðgerðir sem hefðu þanið eigna­mark­aði og markað fyrir heim­ili fólks.

„Þessi þróun var fyr­ir­séð en nú mæta for­svars­menn hæst­virtrar rík­is­stjórnar í fjöl­miðla og segj­ast van­máttugir gagn­vart verð­bólg­unni, að lítið sé hægt að gera. Takið ábyrgð á ástand­inu. Þetta eru afleið­ingar verka eða öllu heldur verk­leysis hæst­virtra ráð­herra.

Í að verða ára­tug hefur efna­hags­stjórn­inni hér á landi verði stýrt meira og minna af sömu flokk­un­um. Þeir hafa brugð­ist fólk­inu í land­inu á hús­næð­is­mark­aði og vand­inn versn­aði all­veru­lega vegna hræðslu þess­ara stjórn­valda við alvöru­að­gerðir í rík­is­fjár­málum í upp­hafi þessa far­ald­urs. Þessi kreddupóli­tík bitnar nú all­hressi­lega á fólk­inu í land­inu. Við blasa vaxta­hækk­an­ir, enda 6 pró­sent verð­bólga en þetta er verð­bólga rík­is­stjórn­ar­inn­ar. Það er ekki rétt­læt­an­legt að hag­stjórn­ar­mis­tök hennar skapi neyð meðal við­kvæmra hópa,“ sagði hún.

Kristrún end­aði mál sitt á að segja að rík­is­stjórnin þyrfti að sjá að sér, losa sig við kreddur og ráð­ast í neyð­ar­að­gerðir í formi vaxta­bóta, barna­bóta og húsa­leigu­bóta. „Það er fólk þarna úti sem hefur ekki tíma til þess að bíða eftir óljósum lof­orðum um fram­tíð­ar­úr­bætur sem hafa setið á hak­anum í ára­tug.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent