Þingfundur enn ekki hafinn - ósætti vegna verkfallsfrumvarpa

Screen-Shot-2015-06-12-at-10.33.55.png
Auglýsing

Þing­fund­ur, sem áætlað var að hæf­ist á Alþingi klukkan tíu í morg­un, er enn ekki haf­inn. Nú er áætlað að fund­ur­inn hefj­ist klukkan 11.30. Á fund­inum verður lagt fram frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um að verk­föllum hjúkr­un­ar­fræð­inga og félaga innan BHM verði frestað til 1. júlí næst­kom­andi.

For­menn allra þing­flokka og for­seti Alþingis fund­uðu í morgun um málið en stjórn­ar­and­staðan vildi ekki fall­ast á að þing­fundur hæf­ist klukkan tíu eins og boðað hafði ver­ið. Katrín Júl­í­us­dótt­ir, vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, segir í sam­tali við RÚV að engin svör hafi feng­ist um það hver for­gangs­mál þings­ins séu og því sé ekk­ert sam­komu­lag um það hvar á dag­skránni frum­varpið sem fresta á verk­föll­unum verð­ur. Þetta stað­festi Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþing­is.

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, mun flytja frum­varpið að því er Morg­un­blaðið greindi fyrst frá í morg­un. Þetta varð nið­ur­staðan eftir ágrein­ing milli odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins um það hvaða ráð­herra skyldi flytja frum­varp­ið. Ef það gengur eftir mun það vera í fyrsta sinn sem for­sæt­is­ráð­herra flytur ekki slíkt frum­varp, sem snertir margar starfs­stétt­ir.

Auglýsing

For­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna hafa tjáð sig um frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar á Face­book-­síðum sínum í morg­un. Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, segir þar að það sé til að bíta höf­uðið af skömminni að neita fjöl­mennri kvenna­stétt um sam­bæri­lega leið­rétt­ingu og gró­inni karla­stétt, lækn­um, á 100 ára afmæli kosn­inga­réttar kvenna og 40 ára afmæli kvenna­frí­dags­ins. Heil­brigð­is­starfs­fólk sé allt með alþjóð­lega menntun sem spurn sé eftir erlend­is, og aldrei hafi getað farið öðru­vísi en illa þegar samið var við lækna. „Við getum ekki brotið upp vinnu­mark­að­inn og veitt fámennum hópi for­rétt­inda­stöðu en látið fjöld­ann bera tjónið af krón­unn­i.“

„Í fjórða sinn á þessu kjör­tíma­bili leggur rík­is­stjórnin fram frum­varp um laga­setn­ingu á verk­fall. Á sama tíma og stjórn­völd telja sig ekki hafa svig­rúm til að semja við opin­bera starfs­menn boða þau skatta­lækk­anir í anda nýfrjáls­hyggj­unn­ar. Þetta sýnir for­gangs­röðun stjórn­valda,“ skrif­aði Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður VG. Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíð­ar, lagði til að frekar yrðu sett lög á rík­is­stjórn­ina.

Nokkur hund­ruð manns eru á mót­mæla­fundi vegna frum­varps­ins á Aust­ur­velli. Mót­mæl­endur hyggj­ast mæta á þing­palla þegar fund­ur­inn hefst.

Upp­fært kl. 11.05: Búið er að ákveða að þing­fundur hefj­ist klukkan 11.30 og var þeim upp­lýs­ingum bætt inn í frétt­ina. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None