Þingmenn Framsóknar vilja sjá ríkisfyrirtæki um rafeldsneytisframleiðslu

Í þingsályktunartillögu frá þingflokki Framsóknar er lagt til að ríkisstjórnin skoði stofnun fyrirtækis um rafeldsneytisframleiðslu, sem yrði í meirihlutaeigu ríkisins. Hafa skuli til hliðsjónar hvernig Noregur byggði upp olíuvinnslu sína.

Stefán Vagn Stefánsson þingmaður Framsóknar er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Stefán Vagn Stefánsson þingmaður Framsóknar er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Auglýsing

Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins leggur til rík­is­stjórnin skoði stofnun rík­is­fé­lags um raf­elds­neyt­is­fram­leiðslu á Íslandi, og að við frum­at­hugun í þeim efnum verði litið til starf­semi Equinor í Nor­egi, sem áður hét Statoil.

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga flokks­ins um þetta mál hefur verið lögð fram á Alþingi, en á bak við hana standa allir þing­menn flokks­ins sem ekki sitja sem ráð­herr­ar. Stefán Vagn Stef­áns­son er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unn­ar.

Ábat­inn renni til þjóð­ar­innar

Í grein­ar­gerð með til­lögu þing­manna Fram­sóknar segir að fram­leiðsla raf­elds­neyt­is, þá vetnis eða ann­ars raf­elds­neytis í formi ammón­íaks, met­anóls eða met­ans, séu græn tæki­færi sem bíði þess að vera nýtt. Fram­tíð­ar­tæk­in­færin í þessum efnum séu mik­il, og mik­il­vægt sé að Ísland verði sjálf­bært er kemur að öflun raf­elds­neyt­is.

En þing­flokknum er ljós­lega ekki sama hvernig staðið verður að því að nýta þau tæki­færi sem liggja í fram­leiðsl­unni, heldur vill horfa til þess að stofnað verði rík­is­fé­lag um fram­leiðsl­una til þess að tryggja að stærsti hluti ábatns af fram­leiðsl­unni renni til þjóð­ar­inn­ar.

Auglýsing

„Ef horft er til Nor­egs og stofn­unar rík­is­ol­íu­fé­lags­ins Statoil árið 1972 ætti öllum að vera ljós ábati norska rík­is­ins af þeirri ákvörð­un. Norski olíu­sjóð­ur­inn er einn sá stærsti í heim­inum í dag og hefur ger­breytt stöðu Norð­manna til upp­bygg­ingar inn­viða og þjón­ustu við íbúa um allan Nor­eg. Ísland er í kjör­stöðu til að nýta auð­lindir sínar til fram­leiðslu raf­elds­neyt­is, bæði fyrir inn­an­lands­fram­leiðslu og mögu­lega til útflutn­ings, og styrkja þannig tekju­stofna rík­is­sjóðs,“ segir í grein­ar­gerð­inni með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu fram­sókn­ar­fólks.

Þar segir einnig að það megi velta upp hvort tekjur af slíku fyr­ir­tæki, ef af yrði, ættu að renna í sam­fé­lags­sjóð líkt og þeim sem Norð­menn hafa komið sér upp í tengslum við olíu­vinnslu sína.

Í grein­ar­gerð fram­sókn­ar­fólks segir einnig að til að stofnun rík­is­fé­lags um fram­leiðsl­una geti orðið að veru­leika skipti „stuðn­ingur og aðgerðir opin­berra aðila og nýsköp­un­ar­sjóða afar miklu máli svo mögu­leiki sé á að skapa það umhverfi sem best verður á kosið og styðja við þróun tækni og lausn­a“.

„Við á Íslandi erum í sterkri stöðu til orku­skipta. Þar af leið­andi þurfum við að gæta þess að tæki­færin sem liggja fyrir í þessum mála­flokki renni okkur ekki úr greip­um. Tæknin er til staðar og okkur ber að nýta hana í þágu þjóð­ar­inn­ar,“ segir þing­flokkur Fram­sóknar í til­lögu sinni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent