Þorsteinn býst við því að leggja aftur fram tillögu um áburðarverksmiðju

19456936922_6e90202792_b.jpg
Auglýsing

Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, býst við því að end­ur­flytja til­lögu sína um að íslenska ríkið kosti hag­kvæmn­is­at­hugun vegna upp­bygg­ingar á áburð­ar­verk­smiðju. Þor­steinn hefur þegar verið fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um málið án þess að það hafi hlotið braut­ar­gengi. Hann seg­ist ekk­ert sjá að því að íslenska ríkið taki þátt í atvinnu­upp­bygg­ingu í hópi ann­arra fjár­festa ef þarf, þá sér­stak­lega til skamms tíma. Þetta opin­ber­aði Þor­steinn í umræðum við stöðu­upp­færslu á Face­book-­síðu Hjálm­ars Gísla­sonar í gær­kvöldi.

Þar fjallar Hjálmar um frétt á mbl.is um að hluta­bréf álfyr­ir­tækja hafi hríð­fall­ið, setur það í sam­hengi við stöðu þeirra álvera sem rekin eru á Íslandi og spyr hvort það þurfi ekki hugs­an­lega að fara að leita að nýjum kaup­endum fyrir orku sem þurfi til að reka eins og eitt álver.

Þor­steinn er á meðal þeirra sem blanda sér í umræður um mál­ið. Hann bendir á að áburð­ar­verk­smiðja gæti notað á milli 200 til 300 Megawött af orku. Síðan segir hann: „ Áburð­ar­verð er á upp­leið og rétt við hámarks­verð. Eft­ir­spurn eykst um ca. 3% á ári og reiknað með að svo verði til a.m.k. 2018. Fram­leiða þarf 50% meiri mat­væli næstu 20 ár til að kom­ast hjá hung­ursneyð að mati OECD. Hef tvisvar flutt þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að ríkið kosti hag­kvæmni­at­hugun vegna upp­bygg­ingar slíkrrar verk­smiðju. Býst við að end­ur­flytja hana í haust.

Auglýsing

Þor­steinn verst síðan ávirð­ingum um að í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu hans felist að ríkið eigi að reisa áburð­ar­verk­smiðj­una. Málið snú­ist um að gera hag­kvæm­is­at­hug­un. Þor­steini var þá bent á við­tal við hann í fréttum Stöðvar 2 í febr­úar 2014 þar sem hann sagði að ekk­ert væri því til fyr­ir­stöðu að ríkið standi fyrir atvinnu­skap­andi verk­efn­um. „Það er mín prí­vat­skoðun sú að ef þarf þá er ekk­ert að því að ríkið leiði hlut­hafa­hóp sem myndi vinna að svona verk­efni eða önnur verk­efn­i,“ ­sagði Þor­steinn.

Þor­steinn sagði að afstaða sín til máls­ins hefði í sjálfu sér ekki breyst. „Sé ekk­ert að því að ríkið taki þátt í atvinnu­upp­bygg­ingu í hópi ann­arra fjár­festa ef þarf, þá sér­stak­lega til skamms tíma á meðan á upp­bygg­ingu stend­ur. Það þýðir ekki ohf. eða hefð­bund­inn rík­is­rekst­ur.“

 

Við­talið við Þor­stein frá því í febr­úar 2014 má sjá hér að neð­an:

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None