Þorsteinn Már telur að Már eigi að segja af sér: „Margir grétu“

samherjaVef.jpg
Auglýsing

„Ég segi að númer eitt, tvö og þrjú þá á Már Guð­munds­son að bera ábyrgð. Hann er yfir­maður Seðla­bank­ans. Hann á að bera þessa ábyrgð. Að sjálf­sögðu á Már Guð­munds­son að segja af sér. Hann er búinn að reka ­mál gagn­vart hund­ruðum ein­stak­linga og fjölda fyr­ir­tækja, að ástæðu­lausu. Þetta fólk hefur þurft að borga lög­fræði­kostn­að­inn sinn sjálft.“

Þetta segir Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, í við­tali við Egg­ert Skúla­son, rit­stjóra DV, í DV í dag. Í við­tal­inu er Þor­steinn Már spurður um rann­sókn Seðla­bank­ans á gjald­eyr­is­við­skiptum fyr­ir­tæk­is­ins. Eins og Kjarn­inn hefur greint frá þá felldi sér­stakur sak­sókn­ari málið niður á hendur Þor­steini Má og öðrum starfs­mönnum Sam­herja, en um þrjú og hálft ár eru liðið frá því að hús­leit var gerð í höf­uð­stöðvum Sam­herja.

Í DV í dag kemur fram að Þor­steinn Már ætli að skrifa bréf til banka­ráðs Seðla­bank­ans og óska eftir því að „brjál­semi verði stöðv­uð“.

Auglýsing

„Bón mín til Seðla­banka­ráðs er ein­föld. Það er kom­inn tími til að þið stöðvið þetta brjál­æði gagn­vart svona mörg­um. Það að fá stöðu sak­born­ings er það alvar­legt mál og mikið inn­grip inn í líf fólks. Mín skoðun er að það hafi verið farið ótrú­lega illa með þetta vald. Ég mun biðla til Seðla­banka­ráðs að þeir stöðvi þessa brjál­semi. Bank­anum var gefið ákveðið lög­reglu­vald og hann kann ekk­ert með þetta að fara. Stoppið þetta,“ segir Þor­steinn Már.

Margir grétu



Egg­ert spyr Þor­stein Má að því hversu erfitt þetta hafi verið hon­um, og vísar þá til rann­sóknar Seðla­bank­ans, og einnig hvort hann hafi grátið á tíma­bili. Í frá­sögn DV segir að löng þögn hafi mynd­ast eftir að spurn­ingin var borin upp og að Þor­steinn Már hafi litið út um glugg­ann. Síðan hafi hann sagt lágum rómi: „Ég grét ekki en það grétu margir aðr­ir. Mér leið að hluta til eins og á strand­stað fyrir tíu árum,“ og vís­aði til þess þegar skipið Bald­vin Þor­steins­son strand­aði skammt frá Vík í Mýr­dal.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None