Þrír ráðherrar og níu þingmenn sækja þing Norðurlandaráðs

Þrír ráðherrar og allir sjö aðalmenn Íslandsdeildar Norðurlandaráðs fara á þing ráðsins í Helsinki sem hefst á morgun. Auk þess munu tveir þingmenn til viðbótar sækja þingið.

Þrír ráðherrar, sjö aðalmenn Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, forseti Alþingis og einn þingmaður til viðbótar fara á þing Norðurlandaráðs sem hefst í Helsinki eftir helgi.
Þrír ráðherrar, sjö aðalmenn Íslandsdeildar Norðurlandaráðs, forseti Alþingis og einn þingmaður til viðbótar fara á þing Norðurlandaráðs sem hefst í Helsinki eftir helgi.
Auglýsing

74. þing Norð­ur­landa­ráðs fer fram 31. októ­ber til 3. nóv­em­ber í Helsinki en þar koma saman þing­menn, for­sæt­is­ráð­herr­ar, utan­rík­is­ráð­herrar og aðrir ráð­herrar frá öllum Norð­ur­lönd­un­um. Þá verður Sauli Niini­stö, for­seti Finn­lands, gesta­ræðu­maður á þing­inu þar sem hann mun fjalla um þýð­ingu nor­ræns sam­starfs í ljósi breyttrar stöðu í örygg­is­mál­um.

Norð­ur­landa­ráð var stofnað árið 1952 og er opin­ber sam­starfs­vett­vangur nor­rænu þjóð­þing­anna. Ráðið skipa 87 þing­menn frá Dan­mörku, Finn­landi, Íslandi, Nor­egi og Sví­þjóð, auk Álandseyja, Fær­eyja og Græn­lands.

Allir aðal­menn Íslands­deildar Norð­ur­landa­ráðs munu sækja þingið sem hefst á mánu­dag. Þau sem fara eru Bryn­dís Har­alds­dótt­ir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður lands­deild­ar­inn­ar, Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins, Haf­dís Hrönn Haf­steins­dótt­ir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisn­ar, Oddný G. Harð­ar­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna.

Auglýsing

Að venju funda for­setar nor­rænu þing­anna í tengslum við Norð­ur­landa­ráðs­þing og fer Birgir Ármanns­son, for­seti Alþingis og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem full­trúi Alþing­is. Þá fer Stein­unn Þóra Árna­dótt­ir, þing­maður Vinstri grænna, sem full­trúi Vest­nor­ræna ráðs­ins sem fundar alltaf með Norð­ur­landa­ráði í tengslum við þing­in.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá utan­rík­is­mála­ráðu­neyt­inu sækja þrír ráð­herrar þing Norð­ur­landa­ráðs í ár og að þessu sinni eru það þau Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, en hann er einnig sam­starfs­ráð­herra Norð­ur­landa, og Lilja Alfreðs­dóttir menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra.

Sjónum beint að fram­tíð­ar­hlut­verki Norð­ur­landa í alþjóða­sam­fé­lag­inu

Stjórn­mála­lands­lagið hefur tekið miklum breyt­ingum frá því að þing Norð­ur­landa­ráðs kom síð­ast saman í Kaup­manna­höfn í byrjun nóv­em­ber í fyrra. Nýjar áskor­anir blasa við Norð­ur­lönd­unum eftir að inn­rás Rússa í Úkra­ínu hófst í febr­ú­ar. Fram­tíð­ar­hlut­verk Norð­ur­landa í heim­inum verður þema leið­toga­fundar þings­ins í ár þar sem áhersla verður lögð á örygg­is­á­skor­an­ir, stríðið í Úkra­ínu og orku- og lofts­lags­vand­ann.

Á leið­toga­fundi Norð­ur­landa­ráðs 1. nóv­em­ber verður sjónum beint að fram­tíð­inni það sem meðal ann­ars verður fjallað um hlut­verk Norð­ur­landa í heim­in­um. Áhersla verður lögð á stöð­una sem upp er komin í örygg­is­málum í kjöl­far inn­rásar Rúss­lands í Úkra­ínu. Einnig verður fjallað um lofts­lags­mál og þann orku­vanda sem heim­ili og fyr­ir­tæki á Norð­ur­löndum eru nú þegar farin að finna fyr­ir. Hvað varðar sam­starf innan Norð­ur­landa munu umræð­urnar snú­ast um afhend­ingar­ör­yggi, stjórn­sýslu­hindr­anir og fram­tíð vel­ferð­ar­lík­ans­ins, lík­ans sem mjög reyndi á í kór­ónu­veiru­far­aldr­in­um.

Leið­toga­fund­ur­inn er hluti af fram­tíð­ar­um­ræðum sem Finn­land hefur sem for­mennsku­land í Norð­ur­landa­ráði ákveðið að standa fyrir á árinu 2022. Á næsta ári gengur for­mennskan til Nor­egs.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent