Þrotabú Landsbankans ætlar að borga út 400 milljarða fyrir árslok

lais2-1.jpg
Auglýsing

Þrotabú Lands­bank­ans hefur ákveðið að stöðva tíma­bundið fram­sal lýstra for­gangskrafna í búið. Stöðv­unin gildir frá og með deg­inum í dag, 8. des­em­ber. Í til­kynn­ingu á vef þrota­bús­ins segir að þessi stöðvun sé „nauð­syn­leg til þess að slita­stjórn gef­ist færi á að upp­færa kröfu­skrá í tengslum við und­ir­bún­ing að hluta­greiðslum sem ráð­gert er að fari fram fyr­ir­lok árs­ins“. Sú hluta­greiðsla er upp á 400 millj­arða króna.

Á fimmtu­dag var til­kynnt um að upp­gjör­samn­ingi milli þrota­bús Lands­bank­ans og nýja Lands­bank­ans vegna skuldar býja bank­ans við þann gamla. Sú skuld var hluti af sam­komu­lagi sem und­ir­ritað var í des­em­ber 2009. Sam­kvæmt því sam­komu­lagi átti nýi bank­inn að greiða þrota­búi þess gamla nokkur hund­ruð millj­arða króna, í erlendum gjald­eyri, vegna mis­munar á virði eigna sem færðar höfðu verið yfir til hans við stofn­un. Loka­greiðsla vegna þess­arrar skuldar átti að vera í októ­ber 2018.

Fengu und­an­þágu fyrir for­gangs­kröfur



Í byrjun síð­ustu viku voru eft­ir­stöðvar þeirrar skuldar 226 millj­arðar króna. Á fimmtu­dag var síðan til­kynnt um að upp­gjörs­samn­ingur hefði náðst sem fól í sér að ný skulda­bréf voru­gefin út. Þau eru upp á 196 millj­arða króna og eru til greiðslu á árunum 2016 til 2026. Það sem upp á vant­ar, um 30 millj­arða króna í erlendum gjald­eyri, var greitt inn á skuld nýja Lands­bank­ans við þrotabú þess gamla.

Í til­kynn­ingu vegna þess kom fram að gild­is­taka upp­gjör­samn­ing­anna byggði á því að þrotabú Lands­bank­ans myndi fá sam­þykktar und­an­þágur frá gjald­eyr­is­höftum til að greiða „inn­heimt reiðufé í erlendum gjald­miðlum að jafn­virði um 400 millj­arðar króna upp í for­gangs­kröf­ur[...]auk vil­yrðis fyrir frek­ari und­an­þágum frá gjald­eyr­is­höftum í sama skyn­i“.

Auglýsing

Upp­haf­leg krafa bús­ins um að greiðslur af skulda­bréfi Lands­bank­ans yrðu tekin alfarið út fyrir höft var því ekki samþykkt.

Því er ljóst að þrotabú Lands­bank­ans fékk ein­ungis und­an­þágur frá höftum til að greiða út for­gangs­kröf­ur. Upp­haf­leg krafa bús­ins um að greiðslur af skulda­bréfi Lands­bank­ans yrðu tekin alfarið út fyrir höft var því ekki sam­þykkt.

For­gangs­kröfur í bú Lands­bank­ans námu 1.328 millj­örðum króna. Þorri þeirra var vegna Ices­a­ve-­reikn­ing­anna svoköll­uðu og stærsti for­gangs­kröfu­haf­inn er breski inn­stæðu­trygg­inga­sjóð­ur­inn sem greiddi trygg­ingu til þeirra Breta sem geymdu fé á reikn­ing­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None