Tillögur slitabúanna í samræmi við skilyrðin – sjáðu tillögur þeirra allra

sigmundur_bjarni.jpg
Auglýsing

Fram­kvæmda­hópur um losun hafta hefur stað­fest að til­lögur slitabú Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans um að mæta stöð­ug­leika­skil­yrðum stjórn­valda falli innan þess ramma sem stýri­hópur um losun hafta hafði sam­þykkt og mælir með því að þeir fái und­an­þágu­heim­ild frá höftum til að ljúka nauða­samn­ingum á grund­velli til­lögu sinn­ar. Þetta kemur fram á heima­síðu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Vert er að taka fram að þeir full­trúar slita­bú­anna sem lögðu fram til­lög­urnar eru ein­ungis full­trúar hluta kröfu­hafa, en þeirra stærstu í hverju búi fyrir sig. Enn á eftir að leggja til­lög­urnar fyrir á kröfu­hafa­fundi og sækja sam­þykki auk­ins meiri­hluta kröfu­hafa um að fara þá leið sem nú hefur verið lögð fram.

Þar segir einnig að með­limir fram­kvæmda­hóps Íslands um losun gjald­eyr­is­hafta (stofn­aður af fjár­mála­ráðu­neyt­inu og Seðla­banka Íslands árið 2014) og ráð­gjafar þeirra hafi haldið röð upp­lýs­inga­funda und­an­farna tvo mán­uði, m.a. með full­trúum lít­ils hóps fjár­festa sem eiga veru­legar kröfur í bú þriggja stóru íslensku bank­anna sem urðu greiðslu­þrota árið 2008, Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans. "Fram­kvæmda­hóp­ur­inn hefur einnig tekið við til­lögum frá kröfu­höfum sem sótt hafa þessa fundi um val­frjálsar ráð­staf­anir að þeirra frum­kvæði sem gerðar eru með það í huga að hlut­leysa þá ógn sem að greiðslu­jöfn­uði stafar vegna inn­lendra eigna í búun­um. Í þessum til­lögum er íhugað að bregð­ast við þeirri ógn bæði með greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags ásamt öðrum ráð­stöf­unum sem ætlað er draga úr útflæði króna sem hafa verið fastar í gjald­eyr­is­höftum og efla gjald­eyr­is­vara­forða Seðla­banka Íslands," segir enn­fremur í frétt­inni.

Auglýsing

Í nið­ur­lagi umfjöll­unar um til­lögu hvers og eins slita­bús segir að fram­kvæmda­hóp­ur­inn hafi stað­fest að til­lögur kröfu­hafa þeirra allra "­séu í sam­ræmi við rammann sem studdur er af stýrinefnd­inni og leggur til að veitt verði und­an­þága á grund­velli til­lagna kröfu­hafa í slita­bú". Veiti Seðla­banki Íslands und­an­þágu frá höftum á grund­velli tilagna kröfu­haf­anna skulu þær eignir sem ekki lengur sæta höftum vera til­tækar til útgreiðslur til­ ­kröfu­hafa í slita­búið í sam­ræmi við þá máls­með­ferð sem kveðið er á um í íslenskum lög­um. Eignir bús­ins skulu í fram­hald­inu ekki sæta gjald­eyr­is­höftum á Íslandi og þá hvorki búið eða kröfu­hafar þess greiða stöð­ug­leika­skatt í neinni mynd eða sam­bæri­lega skatta eða gjöld.

Til­laga Kaup­þings



Til­laga Kaup­þings kveður meðal ann­ars á um stöð­ug­leika­fram­lag til stjórn­valda sem felst í 84 millj­arða króna verð­tryggðs skulda­bréfs að nafn­virði í íslenskum krón­um. Kaup­þing fram­selur jafn­framt eign­ir, rétt­indi og kröfur bús­ins á hendur til­teknum inn­lendum aðilum að nafn­verði um það bil 114,8 millj­arðar króna. Skil­málar verð­tryggða skulda­bréfs­ins gera ráð fyrir tveimur jöfnum afborg­un­um, tveimur og þremur árum eftir útgáfu þess. Vextir verða 5,5 pró­sent og verður tryggt með veði í skulda­bréfum útgefnum í evrum til með­al­langs tíma.

Þá verður sölu­virði sem fæst í 87 pró­senta hluta Kaup­þings í Arion banka við sölu bank­ans, umfram 100 millj­arða króna, milli Seðla­bank­ans eða öðrum aðila sem Seðla­bank­inn til­grein­ir. Ef upp­hæðin nemur á bil­inu 100 til 140 millj­örðum fær Seðla­bank­inn til sín þriðj­ung sölu­virðis umfram 100 millj­arða, upp að 160 millj­örðum fær bank­inn helm­ing sölu­virð­is­ins og 75 pró­sent sölu­virðis umfram 160 millj­arða króna.

Til­laga Glitnis



Í til­lögu Glitnis kemur fram að í kjöl­far fundar sem haldin var 2. júní síð­ast­lið­inn lagði Akin Gump LLP, lög­fræði­legur ráð­gjafi stórs hluta kröfu­hafa Glitn­is, fram til­lögu til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, um hvernir Glitnir ætl­aði sér að mæta stöð­ug­leika­skil­yrð­un­um. Til­lagan er dag­sett í dag, 8. júní.

Á meðal þess sem fram kemur í til­lögu Glitnis er að slita­búið muni greiða í stöð­ug­leika­fram­lag 58 millj­arða króna greiðslu af lausum íslenskum krónum sem eru í slita­búi Glitn­is, þar á meðal 37 millj­arða króna þær aðgreiðslu sem Íslands­banki (í 95 pró­sent eigu Glitn­is) hefur ætlað að greiða búinu. Auk þess fá íslensk stjórn­völd kröfur á aðra inn­lenda aðila upp á 59 millj­arða króna og skulda­bréf upp á 119 millj­arða króna sem munu bera 5,5 pró­sent vexti. Skulda­bréfin verða greidd upp þegar Glitni tekst að selja 95 pró­sent hlut sinn í Íslands­banka eða þremur árum eftir að það verður gefið út gangi sú sala ekki eft­ir.

Auk þess fá íslensk stjórn­völd greiðslur vegna allra krafna í íslenskum krónum sem Glitnir gæti mögu­lega fengið vegna inn­lenda aðila, alls upp á 14 millj­arða króna, og allar greiðslur sem Glitnir gæti fengið í íslenskum krónum vegna dóms­mála sem höfðað hafa verið en er ekki lok­ið.

Glitnir má halda eftir fimm millj­örðum króna í íslenskum krónum til að greiða fyrir allan kostnað í krónum sem fellur til árin 2015, 2016 og 2017 og greiða á inn­lendum aðil­um.

Til­laga Lands­bank­ans



Til­lögur Lands­banka Íslands gera ráð fyrir að í stöð­ug­leika­fram­lagi til stjórn­valda séu allar lausa­fjár­eignir þrota­bús­ins í íslenskum krón­um. Auk þess verða kröfur bús­ins á hendur til­teknum inn­lendum aðilum fram­seld­ar. Virði krafna er metið um 9,5 millj­arðar króna. Sér­stak­lega er tekið fram að skulda­bréfið milli gamla og nýja Lands­bank­ans sé ekki hluti af samn­ingn­um. Sama gildir um Avens-skulda­bréf, skuld­bréf útgefið af Lands­virkjun og kröfur í þrotabú Baugs, BG Hold­ing, Kaup­þing og Glitni.

Til­laga Glitn­is.

Til­laga Kaup­þings.

Til­laga Lands­bank­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None