Tugir starfsmanna ALMC verða af milljarða bónusgreiðslum - Stefna ríkinu ef þörf krefur

straumur1.jpg
Auglýsing

Félagið ALMC, sem áður var Straum­ur-­Burða­rás fjár­fest­inga­banki, mun að óbreyttu greiða yfir 50 millj­arða króna í stöð­ug­leika­skatt til rík­is­sjóðs. Af þeim sökum er allt útlit fyrir að ekk­ert verði að fyr­ir­hug­uðum bón­us­greiðslum til á bil­inu tutt­ugu til þrjá­tíu starfs­manna, bæði núver­andi og fyrr­ver­andi. Bón­us­greiðsl­urnar áttu að nema sam­tals tæp­lega 23 millj­ónum evra, jafn­virði um 3,4 millj­arða króna. ALMC hyggst höfða mál á hendur rík­inu ef þess ger­ist þörf, til þess að verja hags­muni sína.

Þetta kemur fram í DV í dag þar sem fjallað er um málið. Fram kemur að miðað við eignir félags­ins um síð­ustu ára­mót mun 39 pró­senta stöð­ug­leika­skattur kosta félag­ið ­rúm­lega 53 millj­arða króna. Við þetta eru stjórn­endur ALMC ósáttir en þeir telja ekki rétt að stöð­ug­leika­skatt­ur­inn nái til félags­ins. Stjórn­end­urnir telja starf­sem­ina hafa til þessa haft jákvæð áhrif á greiðslu­jöfnuð íslenska þjóð­ar­bús­ins, að því er segir í DV.

Þar sem skatt­lagn­ingin dregur úr áætl­uðum end­ur­heimtum kröfu­hafa ALMC þá munu starfs­menn­irnir ekki fá áður fyr­ir­hug­aðar bón­us­greiðsl­ur, en kröfu­hafar ALMC eru flestir erlendir vog­un­ar­sjóð­ir. Í frétt DV segir að meiri­hluti þeirra starfs­manna, bæði fyrr­ver­andi og núver­andi, sem áttu að fá bón­us­greiðslur séu flestir erlendir aðilar en einnig sé um að ræða Íslend­inga sem starfað hafa ýmist fyrir ALMC og Straum fjár­fest­inga­banka, sem nýlega sam­ein­að­ist MP banka. Að með­al­tali myndu greiðsl­urnar nema yfir 100 millj­ónum króna á starfs­mann.

Auglýsing

Telja skatt­inn ekki eiga við ALMC



Sama dag og frum­varp um stöð­ug­leika­skatt varð að lög­um, þann 3. júlí síð­ast­lið­inn, sendi lög­maður ALMC Frosta Sig­ur­jóns­syni, for­manni efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar, bréf þar sem því er harð­lega mót­mælt að skatt­skyldan sé látin ná til félags­ins.  Reimar Pét­urs­son, lög­maður ALMC, segir félagið ekki geta kom­ist hjá skatt­skyld­unni með sama hætti og slitabú föllnu bank­anna, það er með gerð nauða­samn­inga fyrir árs­lok, vegna þess að ALMC hafi þegar lokið slíkum nauða­samn­ingi og rétt­ar­staða félags­ins því í grund­vall­ar­at­riðum ólík því sem gildir um fjár­mála­fyr­ir­tæki sem sæta slita­með­ferð í dag.

Heim­ildir DV herma að Seðla­bank­inn líti svo á að útgreiðsla eigna ALMC til erlendra kröfu­hafa myndi hafa nei­kvæð áhrif á greiðslu­jöfnuð þjóð­ar­bús­ins og sé því hluti af þeim greiðslu­jafn­að­ar­vanda sem frum­varp­inu um stöð­ug­leika­skatt sé ætlað að leysa. Því sé talið eðli­legt að skatt­heimtan nái einnig til ALMC.

Umfjöllun DV.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None