Allir stóru bankarnir búnir að hækka íbúðalánavexti og heimilin borga meira

Rúmlega helmingur allra sem eru með íbúðalán á Íslandi eru með óverðtryggð lán. Stór hluti þeirra lána er á breytilegum vöxtum og afborganir þeirra hafa hækkað í takti við stýrivaxtahækkanir Seðlabankans undanfarna mánuði.

7DM_9563_raw_2114.JPG
Auglýsing

Arion banki til­kynnti í dag að hann hefði hækkað óverð­tryggða breyti­lega íbúða­lána­vexti sína um 0,15 pró­sentu­stig, í 3,89 pró­sent, og fasta óverð­tryggða vexti til þriggja ára um sama pró­sentu­stig, og eru þeir frá og með morg­un­deg­inum 4,64 pró­sent. ­Skömmu síðar til­kynnti Íslands­banki hækkun á sínum breyti­legu óverð­tryggðu íbúða­lána­vöxtum um 0,15 pró­sentu­stig.

Lands­bank­inn breytti sínum vöxtum á mánu­dag þegar hann hækkað breyti­legu óverð­tryggðu vext­ina um 0,2 pró­sentu­stig (vextir á láni fyrir 70 pró­sent af kaup­verði eru nú 3,85 pró­sent), föstu óverð­tryggðu vext­ina til þriggja ára um 0,15 pró­sentu­stig og föstu vext­ina til fimm ára um 0,15 pró­sentu­stig. 

Þar með hafa allir stóru við­skipta­bank­arnir þrír til­kynnt hækk­anir á íbúða­lána­vöxtum sínum í vik­unni. Engar breyt­ingar hafa verið gerðar á verð­tryggðum vöxt­um.

Ástæðan fyrir hækk­un­inni er stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands í byrjun mán­að­ar, en þá voru stýri­vextir hækk­aðir um 0,25 pró­sentu­stig í 1,5 pró­sent. Frá því að hækk­un­ar­ferli stýri­vaxta hófst hjá bank­anum í maí hafa þeir tvö­fald­ast.

Auglýsing
Frá því að stýri­vextir voru lækk­aðir stór­kost­lega í fyrra­vor, niður í 0,75 pró­sent, átti sér stað mikil til­færsla á lánum frá líf­eyr­is­sjóðum til banka og í óverð­tryggð lán. Ástæðan var ein­­föld: þeir buðu betur og líf­eyr­is­­sjóð­irnir voru farnir að reka sig upp í þakið á því sem þeir gátu lánað sjóðs­fé­lögum sínum til íbúð­­ar­­kaupa. 

Nú bjóða bank­­arnir hins vegar ekki lengur lægstu óverð­­tryggðu vext­ina, heldur líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn Gildi. Sem stendur eru óverð­­tryggðir vextir hans á 75 pró­­sent láni um 3,55 pró­­sent. 

Helm­ingur lána óverð­tryggður

Hlut­­fall óverð­­tryggðra lána af heild­ar­­í­­búða­lánum til heim­il­anna var 27,5 pró­­sent í jan­úar í fyrra. Í ágúst síð­­ast­liðnum var það hlut­­fall hins vegar komið upp í 50,2 pró­­sent. Í nýlegri mán­að­ar­skýrslu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) um íbúða­mark­að­inn er bent á að eftir því sem hlut­­deild óverð­­tryggðra íbúða­lána eykst sé við­­búið að miðlun pen­inga­­stefnu Seðla­­bank­ans verði virk­­ari. „Breyt­ingar á stýri­vöxtum munu hafa meiri áhrif á hag­­kerfið í heild þegar stærra hlut­­fall af heild­ar­­í­­búða­lánum til heim­il­anna eru óverð­­tryggð þar sem óverð­­tryggðir vextir eru næm­­ari fyrir stýri­­vaxta­breyt­ing­­um. Þessi þróun getur leitt til þess að Seðla­­bank­inn þurfi ekki að hækka vexti eins mikið til að slá á eft­ir­­spurn og ef hlut­­fall óverð­­tryggðra lána væri lægra.“

Sóknin í fast­­vaxta­lánin eftir að vextir tóku að hækka er líka nokkuð skýr í töl­unum sem HMS birtir í skýrsl­unni sinni. Þar kemur fram að í ágúst hafi 61 pró­­sent af nýjum óverð­­tryggðum útlánum inn­­láns­­stofn­ana til heim­il­anna verið fast­­vaxta­lán á meðan 39 pró­­sent voru á breyt­i­­legum vöxt­­um. „Aukn­ing á hlut­­falli fast­­vaxta­lána bendir til þess að heim­ilin búist við tölu­verðum vaxta­hækk­­unum þar sem bilið á milli fastra vaxta og breyt­i­­legra er breitt.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent