Tvöfalt fleiri sjónvarpstæki flutt til landsins

eimskip.jpg
Auglýsing

Inn­flutn­ingur á sjón­varps­tækjum er tvö­falt meiri á fyrstu sex mán­uðum árs­ins í sam­an­burði við fyrstu sex mán­uði árs­ins 2014. Inn­flutn­ingur á hljóð­varpstækjum hefur auk­ist um 46 pró­sent, á kæli- og frysti­tækjum um 73 pró­sent og á fólks­bílum um 34 pró­sent. Auk­inn kaup­mátt­ur, fjölgun ferða­manna, sterkara raun­gengi og lækkun vöru­gjalda á raf­tækjum hefur vafa­laust haft sitt að segja, að mati grein­ing­ar­deildar Arion banka sem fjallar í dag um aukin umsvif í inn- og útflutn­ingi.

Innflutningur á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við fyrstu sex mánuði ársins 2014. Myndin er fengin úr Markaðspunktum greiningardeildar Arion banka. Inn­flutn­ingur á fyrstu sex mán­uðum árs­ins sam­an­borið við fyrstu sex mán­uði árs­ins 2014. Myndin er fengin úr Mark­aðs­punktum grein­ing­ar­deildar Arion banka.

„Aukin umsvif eru í hag­kerf­inu um þessar mund­ir, nær sama hvert litið er. Utan­rík­is­verslun er þar engin und­an­tekn­ing en á fyrri helm­ingi árs­ins hefur inn­flutn­ingur auk­ist um 23% milli ára á föstu gengi og útflutn­ingur auk­ist um 25%,“ segir í Mark­aðs­punktar grein­ing­ar­deild­ar­inn­ar. Kjarn­inn fjallað var um vöru­skiptin í síð­ustu viku.

Auglýsing


Stærstur hluti aukn­ing­ar­innar á inn­flutn­ingi er vegna hrá­vara og rekstr­ar­vara. Inn­flutn­ingur á þessu vöru­flokkum jókst um 25 millj­arða í sam­an­burði við fyrri helm­ing árs 2014. Þar af eru 13 millj­arðar til­komnir vegna auk­ins inn­flutn­ings á súráli, sem ál er unnið úr. „Aukn­ing á inn­flutn­ingi súráls hefur verið meiri en aukn­ing útflutn­ings á áli í tonnum talið, eða 17% og t.d. var inn­flutn­ingur á súráli í júní nærri því tvö­falt meiri en í júní í fyrra ann­ars vegar og í maí síð­ast­liðnum hins veg­ar. Þá hefur inn­flutn­ingur á fjár­fest­inga­vörum einnig auk­ist. Upp­gangur í íbúða­fjár­fest­ingu sést þegar rýnt er nánar í töl­urn­ar, en t.a.m. var flutt inn tvö­falt meira af þakjárnum og 25% meira af rúðu­glerum á fyrri helm­ingi árs­ins sam­an­borið við fyrri helm­ing árs­ins 2014,“ segir grein­ing­ar­deild Arion banka.



Sjáv­ar­af­urðir og ál skýra stærstan hluta aukn­ingar á verð­mæti útflutn­ings. Verð­mæti sjáv­ar­af­urða hefur auk­ist um 26 pró­sent, að mestu leyti vegna hærra verðs. Bent er á í grein grein­ing­ar­deild­ar­innar að útflutn­ingur hafi þó einnig auk­ist í tonnum talið um tæp­lega 19.000 tonn, eða um 6 pró­sent. Á milli tíma­bil­anna hefur verð­mæti áls síðan auk­ist um 46 pró­sent. Það jafn­gildir um 40 millj­örðum króna. Samt hefur heims­mark­aðs­verð áls á fyrri helm­ingi árs­ins verið að með­al­tali svipað og á sama tíma í fyrra og útflutt magn áls aðeins auk­ist um 6% milli ára. Lík­legt er að styrk­ing banda­ríkja­doll­ars hafi aukið útflutn­ings­verð­mæti áls í krónum talið, en krónan hefur á árinu verið að jafn­aði 18% veik­ari gagn­vart doll­arnum heldur en í fyrra. Það dugir þó ekki til að útskýra 38% hækkun á útflutn­ings­verð­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None