Umræða um málefni innflytjenda gengur fram af þingmanni – Skömm að tala málið niður

Þingmaður Vinstri grænni segir að Íslendingar eigi að sýna þann þroska að geta sinnt útlendingamálum með almennilegum hætti og gera það sem best – „við sem rík þjóð“. Umræða Miðflokksmanna hafi gengið fram af henni í gær.

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG.
Auglýsing

„Við eigum að sýna þann þroska að geta gert þetta með almenni­legum hætti og gera það sem best, við sem rík þjóð, en snúa þessu máli ekki á hvolf, að þarna sé ein­hver stór­hætta á ferð­inni, að við séum að opna fyrir óheftan flutn­ing fólks hingað víðs vegar úr heim­in­um. Við erum að sam­ræma þessa þjón­ustu, vinna þetta af okkar bestu getu og eigum að gera það. Ég tel það vera skömm að tala þetta mál nið­ur.“

Þetta sagði Lilja Raf­ney Magn­ús­dótt­ir, þing­maður Vinstri grænna, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Vísar hún í umræðu sem átti sér stað á Alþingi í gær um stjórn­ar­frum­varp sem snýr að því að útvíkka hlut­verk Fjöl­menn­ing­ar­set­urs og auka fjár­fram­lög til stofn­un­ar­inn­ar.

Mið­flokks­menn héldu uppi, því sem þing­maður Vinstri grænna Kol­beinn Ótt­ars­son Proppé kall­aði mál­þóf, í gær en þeir hafa lýst yfir áhyggjum af því að laga­breyt­ingin fjölgi inn­flytj­endum á Íslandi.

Auglýsing

Í frétt RÚV um málið í gær kom fram að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hefði sagt það ljóst að hæl­is­leit­enda­kerfið á Íslandi væri mis­not­að. „Enda ekki hægt að gera ráð fyrir að glæpa­gengi sem taka aleig­una af fólki og setja það í lífs­hættu muni vilja fylgja í öllum til­vikum settum regl­u­m,“ sagði hann og benti á að ef kerfið auð­veld­aði mis­notkun bitn­aði það mest á þeim sem þurfa á hjálp að halda.

„Og þess vegna þurfum við við hönnun mót­töku­kerfis að setja í for­gang að það sé til þess fallið að aðstoða þá sem þurfa mest á hjálp­inni að halda.“ Með frum­varp­inu væri rík­is­stjórnin að gera sig að jað­ar­hópi í þessum mála­flokki. „Því í Dan­mörku er sam­staða frá hægri til Sosí­alde­mókrata, og raun lengra til vinstri, um að breyt­inga sé þörf. Og þær breyt­ingar ganga þvert á það sem lagt er til hérna,“ sagði Sig­mundur Dav­íð.

Staða hæl­is­leit­enda og flótta­manna alþjóða­vandi

Lilja Raf­ney gaf lítið fyrir þessa orð­ræðu Mið­flokks­manna í máli sínu á þingi í dag. „Ég verð að við­ur­kenna það að sú mikla umræða sem hér hefur farið fram und­an­far­inn sól­ar­hring um mál­efni inn­flytj­enda gengur fram af mér. Þetta er gott mál sem er verið að leggja fram með yfir­gnæf­andi stuðn­ingi hér á Alþingi. En það virð­ist vera að einn flokkur ákveði að leggja þetta mál upp þannig að það sé rétt að sá ótta og tor­tryggni gagn­vart því við almenn­ing í land­inu. Þarna er verið að gera eitt­hvað sem er ekki gott í sam­hengi hlut­anna,“ sagði hún.

Benti hún á að staða hæl­is­leit­enda og flótta­manna væri alþjóða­vandi og við sem þjóð bærum sið­ferð­is­legar skyldur til að taka okkar skerf og gera það sem við getum til að hafa þessi mál í sem bestu lagi hér heima.

„Það erum við að gera með því frum­varpi sem hér liggur fyrir um mál­efni inn­flytj­enda. Við erum að tengja Fjöl­menn­ing­ar­setrið, sem hefur sinnt sínu hlut­verki vel og hefur verið stað­sett á Ísa­firði, og víkka það núna inn á höf­uð­borg­ar­svæð­ið, það er verið að sam­ræma mót­töku kvótaflótta­manna og hæl­is­leit­enda og að Fjöl­menn­ing­ar­setur geti veitt sem bestar upp­lýs­ingar um þá þjón­ustu sem er í boði til þeirra sveit­ar­fé­laga sem hafa verið að taka á móti kvótaflótta­mönnum og auð­vitað heilt yfir gagn­vart inn­flytj­endum hér á Ísland­i,“ sagði Lilja Raf­n­ey.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent