Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur tekið ákvörðun að skipa nýja sendiherra Íslands í Stokkhólmi, höfuðborgar Svíþjóðar, og Osló, höfuðborgar Noregs, frá og með 1. ágúst næstkomandi. Þá mun Estrid Brekkan, sendiráðunautur, verða sendiherra Íslands í Stokkhólmi og Hermann Örn Ingólfsson, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu, verða sendiherra Íslands í Osló.
Gunnar Gunnarsson, sem verið hefur sendiherra í Stokkhólmi, og Gunnar Pálsson, sem verið hefur sendiherra í Osló, koma báðir til starfa í utanríkisráðuneytinu. Þetta kemur fram í frétt á vef ráðuneytisins sem birt var í dag.
Tilkynnt var um skipan Estrid í embætti sendiherra í lok mars síðastliðins. Þá kom hins vegar ekki fram hvar hún myndi starfa. Estrid hefur gegnt embætti deildarstjóra á alþjóða- og öryggisskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Hermann var skipaður sendiherra í miklum sendiherrakapli sumarið 2014. Líkt og með Estrid þá var ekki tilkynnt, fyrr en í dag, við hvaða sendiráði hann myndi taka.