Útflutningur til Rússlands féll á fyrri helmingi árs

putin.jpg
Auglýsing

Verð­mæti útflutn­ings á ís­lenskum afurðum til Rúss­lands var um fjöru­tíu pró­sent lægra á fyrri helm­ingi árs 2015 en á sama tíma­bili 2014. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2015 nam útflutn­ings­verð­mæti til Rúss­lands um 7.045 millj­ónum króna en verð­mæti varn­ings á fyrstu sex mán­uðum árs 2014 var 11.421 milljón króna.

Útflutn­ingur í júní 2015 var þó meiri en í sam­an­burði við júní 2014, eða 1.886 millj­ónir króna sam­an­borið við 543 millj­ónir í fyrra. Sveiflur milli mán­aða geta því verið nokkr­ar. Á síð­ustu árum hefur útflutn­ings­verð­mæti til Rúss­lands verið hærra á seinni helm­ingi árs og skýrist meðal ann­ars af veiði­tíma­bilum upp­sjáv­ar­fisks.

Auglýsing


Efn­hagur Rúss­lands hefur átt undir högg að sækja und­an­farin miss­eri. Í síð­ustu viku var greint frá því að lands­fram­leiðsla lands­ins féll um 4,6 pró­sent á 2. árs­fjórð­ungi 2015. Í fyrsta sinn frá 2009 er kreppa í Rúss­landi, sem ekki síst má rekja til hríð­fallandi olíu­verðs sem stendur undir 50 doll­urum á tunnu í dag. Við­skipta­þving­anir Vest­ur­landa hafa einnig bitið og er það mat Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins að hag­vöxtur í Rúss­landi hafi minnkað um eitt til eitt og hálft pró­sentu­stig vegna við­skipta­þving­ana, frá því þær voru settar á fyrir rúmu ári síð­an.



Til að sýna mátt sinn, og sam­tímis auka inn­lenda fram­leiðslu, lögðu Rússar bann á inn­flutn­ing mat­væla frá sömu ríkjum og beita þá við­skipta­þving­un­um. Eins og kunn­ugt er gildir bannið nú einnig fyrir Ísland. Bannið tók gildi í síð­ustu viku.



Hag­stofan rann­sakar áreið­an­leika



Sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar nam útflutn­ingur til Rúss­lands um 29,1 millj­arði króna á síð­asta ári (þar af 11,4 millj­arðar á fyrri helm­ingi árs­ins). Stór hluti útflutn­ings, nærri 24 millj­arðar króna, eru sjáv­ar­af­urð­ir, helst mak­ríll, loðna og síld.



Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) hafa sagt að tölur Hag­stof­unnar gefi ekki rétta mynd af útflutn­ingi sjáv­ar­af­urða til Rúss­lands. Sam­tök­in ­segja töl­una hærri. Um 40 pró­sent af verð­mætum sjáv­ar­af­urða til Hollands fer áfram til Rúss­lands og 80 pró­sent af verð­mætum sem flutt er til Lit­háen fer áfram til Rúss­lands, segir SFS.



Kol­beinn Árna­son, fram­kvæmda­stjóri SFS, sagði í Morg­un­út­gáfu Rásar 2 í morgun að við ákvörðun íslenskra stjórn­valda við að styðja aðgerðir Vest­ur­landa gegn Rúss­landi hafi hags­munir Íslands verið van­metnir.



Hag­stofa Íslands birti í gær yfir­lit yfir vöru­skipti við Rúss­land á fimmtán ára tíma­bili, frá 1999 til 2014. Útflutn­ingur til Rúss­lands hefur á þessum tíma marg­faldast, frá því að nema um 2,3 millj­örðum árið 2004 yfir í nærri 30 millj­arða 2014.



Í umfjöllun Hag­stof­unn­ar, sem byggir á toll­skýrsl­um, er fjallað um áreið­an­leika taln­anna og tekið fram að útflytj­endum beri að greina frá því í toll­skýrslum hvar varan end­ar. „Hag­stofan byggir sínar tölur á þeim upp­lýs­ing­um. Til að draga úr óvissu í þessum efnum hefur Hag­stofan hafið rann­sókn á nákvæmni upp­lýs­inga um end­an­legt ákvörð­un­ar­land útflutn­ings í toll­skýrsl­um. Sú rann­sókn bein­ist þó ekki að Rúss­landi sér­stak­lega heldur fremur að háu hlut­falli Hollands í útflutn­ings­skýrsl­u­m,“ segir Hag­stof­an.



Nærri 30 pró­sent af öllum útflutn­ingi Íslands árið 2014 fór til Hollands, þar sem stærsta skipa­höfn Evr­ópu er, í Rott­er­dam.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None