Útgerðin hefur hagnast um rúma 97 milljarða króna frá árinu 2009

Sk.laberg9-183414766.jpg
Auglýsing

Útgerðir smá­báta og fiski­skipa á Íslandi hafa hagn­ast um 97,5 millj­arða króna á síð­ast­liðnum fimm árum, eða frá árinu 2009. Þetta kemur fram í upp­lýs­ingum sem Credit­info tók saman að beiðni Kjarn­ans, en töl­urnar eru fengnar úr árs­reikn­ingum útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna.

Í sam­bæri­legri frétt sem Kjarn­inn gerði um hagn­að ­geirans í októ­ber, kom fram að útgerðin hefði hagn­ast um hátt í átta­tíu millj­arða króna á tíma­bil­inu, en þá áttu nokkur hund­ruð félög enn eftir að skila inn árs­reikn­ingum fyrir rekstr­ar­árið 2013. Á þeim tíma­punkti höfðu 595 útgerð­ar­fyr­ir­tæki skilað inn árs­reikn­ingi fyrir árið 2013, en í dag hafa 1056 útgerðir smá­báta og fiski­skipa af þeim 1173 fyr­ir­tækjum sem falla undir ÍSAT flokk­un­ina skilað inn árs­reikn­ing­um. Frestur til að skila inn árs­reikn­ingum fyrir árið 2013 rann út 31. ágúst síð­ast­lið­inn.

Auglýsing


Mesti hagn­aður grein­ar­innar und­an­farin fimm ár



Sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi árs­reikn­ingum nam hagn­aður útgerð­anna, eftir skatta, afskriftir og vaxta­gjöld, rúmum 29 millj­örðum króna árið 2013, sem er besta ársnið­ur­staða geirans á und­an­förnum fimm árum. Hagur fyr­ir­tækj­anna hefur vænkast hratt á tíma­bil­inu, en sem dæmi um upp­gang grein­ar­innar má nefna að árið 2009 nam hagn­aður útgerð­ar­innar 4,6 millj­örðum króna. Hagn­að­ur­inn tók svo stökk árið eft­ir, og nam tæpum 15,4 millj­örðum króna í árs­lok 2010.

Hagn­aður útgerða fiski­skipa nam rúmum 24,2 millj­örðum árið 2013, sam­an­borið við tæpan 21 millj­arð króna árið 2012. Þá nam hagn­aður útgerða smá­báta rúm­um 4,8 millj­örðum í árs­lok 2013, en þær högn­uð­ust um tæpa 2,2 millj­arða króna árið áður.

Í lok síð­asta árs hljóð­uðu heild­ar­eignir útgerð­ar­fyr­ir­tækj­anna upp á tæpa 216 millj­arða króna, en þá nam eigið fé félag­anna tæpum 58,5 millj­örðum króna.

Hafa ber í huga að fréttin byggir ein­vörð­ungu á árs­reikn­ingum fyr­ir­tækja sem gera út fiski­skip og smá­báta til veiða fyrir rekstr­ar­árið 2013. Sam­kvæmt riti Hag­stof­unnar um hag fisk­veiða og fisk­vinnslu nam hreinn hagn­aður sjáv­ar­út­vegs­ins, sam­kvæmt árs­greiðslu­að­ferð, ríf­lega 57 millj­örðum króna, eða 21,5 pró­sent­um, sam­an­borið við 22,6 pró­sent árið áður.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None