Útvarp Saga í meiðyrðamál gegn ótilgreindum gagnrýnendum

útvarp-saga1.jpg
Auglýsing

Stjórn­endur útvarps­stöðv­ar­innar Útvarps Sögu hafa falið lög­manni að lög­sækja þá „sem harð­ast hafa gengið fram gegn per­sónum þeirra með óvægnum og ómál­efna­legum hætt­i.“ Þetta segir lög­mað­ur­inn, Sævar Þór Jóns­son, á bloggi sínu á Eyj­unni í dag.

Sævar segir að hann hafi fyrir hönd stjórn­end­anna, vænt­an­lega Arn­þrúðar Karls­dóttur og Pét­urs Gunn­laugs­son­ar, fylgst með umræð­unni um stöð­ina og for­svars­menn hennar und­an­far­ið. „Má með sanni segja að sú umræða er komin út fyrir öll vel­sæm­is­mörk.“ Það eigi ekki að líð­ast í lýð­ræð­is­ríki að „fólk þurfi að sitja undir per­sónu­legum árásum á opin­berum vett­vangi eins og inter­net­inu og þurfa að þola sær­andi og æru­meið­andi ummæli ítrek­að.“

 

Auglýsing

Þá segir hann að umræðan ein­kenn­ist á köflum af ein­elt­istil­burð­um.

Í pistl­inum segir Sævar líka: „Eitt er að vera ósam­mála um mál­efni og hafa ólíkar skoð­an­ir, það er eðli­legt og nauð­syn­legt í lýð­ræð­is­ríki og grund­völlur þess að hægt sé að eiga rök­ræn skoð­ana­skipti. En það er annað mál að úthrópa fólki fyrir skoð­anir sín­ar, slíkt á sér engan stað í lýð­ræð­is­legri umræðu. Það á vita­skuld að bera virð­ingu fyrir skoð­unum fólks, þótt þær kunni að vera ólík­ar, og sé maður ósam­mála þá mætir maður þeim með mál­efna­legir gagn­rýni og rök­um. Það er ekki boð­legt í lýð­ræð­is­legri umræðu að ráð­ast með óvægnum og meið­andi hætti á per­sónu þess sem hefur aðrar skoð­anir en maður sjálf­ur, þaðan af síður að gera öðrum upp skoð­an­ir.“

Sævar Þór segir að það hafi tíðkast að fela sig á bak við tján­ing­ar­frelsið eins og það feli í sér ein­hvern rétt til þess að segja hvað sem er án ábyrgð­ar. „Það gleym­ist aftur á móti að frelsi fylgir ábyrgð“ segir hann.

Útvarp Saga hefur verið tals­vert í umræð­unni und­an­far­ið, ekki síst eftir skoð­ana­könnun á vef­síðu mið­ils­ins þar sem spurt var hvort við­kom­andi treysti múslim­um. Reglu­lega er rætt um inn­flytj­enda­mál á stöð­inni. Í kjöl­far þess ósk­uðu bæði Bubbi Morthens og hljóm­sveitin Ljótu hálf­vit­arnir eftir því að útvarps­stöð­inni yrði meinað að spila tón­list þeirra vegna þess sem þau sögðu hat­ursá­róð­ur. Þetta tók Arn­þrúður óstinnt upp. Útvarp Saga setti svo inn nýja könnun á síð­una þar sem spurt var hvort fólk treysti Bubba.

Ekki kemur fram í grein Sæv­ars hverja for­svars­menn Útvarps Sögu hyggj­ast sækja til saka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None