Valitor, Borgun og Greiðsluveitan hafa samþykkt að greiða Kortaþjónustunni 250 milljónir króna sáttagreiðslu vegna tjóns sem Kortaþjónustan varð fyrir á árunum 2002 til 2006 vegna samkeppnislagabrota Valitors, Borgunar og Greiðsluveitunnar. Frá sáttagreiðslunni er greint í fréttatilkynningu sem send var fjölmiðlum í dag.
Sátt var gerð við Samkeppniseftirlitið vegna samkeppnislagabrotanna árið 2008 af hálfu Greiðslumiðlunar (nú Valitor), Kreditkorta hf. (nú Borgunar) og Fjölgreiðslumiðlunar hf. (nú Greiðsluveitunnar) en á umræddum tíma 2002 til 2006 var Kortaþjónustan umboðsskrifstofa fyrir danska stórfyrirtækið Teller (áður TBS) hér á landi.
„Sáttin er hluti hluti af uppgjöri við fortíðina og mikilvægt að þessi kafli sé að baki. Miklar breytingar standa nú yfir á íslenska greiðslukortakerfinu. Nýr grunnur heilbrigðrar samkeppni hefur verið lagður með skýrum og réttlátari leikreglum sem eiga að koma öllum til góða, söluaðilum, kortafyrirtækjum og korthöfum. Valitor vinnur náið með samkeppnisyfirvöldum að framkvæmd þessara breytinga og við horfum bjartsýn fram á veg.“ Þetta er haft eftir Viðari Þorkelssyni forstjóra Valitor í áðurnefndri fréttatilkynningu.