Kjarasamningar Félags vélstjóra og málmtæknimanna (VM) við Samtök atvinnulífsins voru felldir í allsherjaratkvæðagreiðslu sem lauk á hádegi í gær. Samningarnir voru undirritaðir þann 22. júní síðastliðinn. Um er að ræða almennan kjarasamning VM vegna starfa félagsmanna á almennum vinnumarkaði í landi, þ.e. málmiðnaðarmanna, netagerðarmanna og vélstjóra sem starfa í landi. Samningurinn var felldur með tæplega 58 prósent atkvæða.
Á kjörskrá voru 1734 félagsmenn. Þar af tóku 630 þátt í kosningunni, eða 36,3 prósent.. Já sögðu 253, eða 40,16 prósent þátttakenda. Nei sögðu 365, eða 57,94 prósent þátttakenda og 12, eða 1,9 prósent, sátu hjá. Í kosningunni voru þátttakendur spurðir hvort þeir samþykktu kjarasamning VM við SA sem undirritaður var þann 22. júní 2015.